Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, apríl 14, 2008

Stelpan endurvakin

Jæja - það hlaut að koma að því - mín farin að blogga á ný!

Það sem vakti mig til lífs á ný var póstur sem ég fékk frá "Dot TK registration center".
Þeir eru semsagt búnir að taka upp á því að senda manni póst sem upplistar allar heimsóknir á síðuna manns (þ.e.a.s. .tk síðuna) og láta fylgja frá hvaða landi heimsóknin kemur.

Það sem mér þótti eilítið undarlegt var að heimsóknir á síðuna mína koma frá hinum ýmsustu löndum!
Langflestir koma að sjálfsögðu frá Íslandi - en þar næst koma Bandaraíkin með 6 heimsóknir, Rússland og Þýskaland með 5 heimsóknir hvort, Danmörk með 2 heimsóknir - og svo koma Spánn, Frakkland, Brasilía, Kína og Kólumbía með eina heimsókn hvert!

Þetta þykir mér skemmtilegt og klárlega efni til að hefja einhverskonar "landasöfnun" eða keppni milli landa!
Þannig væri jafnvel hægt að skipta heiminum upp á skemmtilegan hátt - landfræðilega eða bara með því að draga random lönd saman í lið - og hefja einhverskonar "collect all 5" keppni - eða álíka!

Ég er ekki búin að hugsa þetta alveg til enda en svo mikið er víst að þetta verður æsispennandi keppni og mun að líkindum vera lagður meiri metnaður í bloggið en áður í þeirri von að maður nái inn nýjum og spennandi löndum... þó svo ég átti mig ekki á hver í öllum þessum löndum ætli að lesa bloggið... en það er önnur saga!

Annars er það helst að frétta að það er ekkert að frétta! Það er bara nóg að gera og þegar ég kem heim eftir langan og strangan vinnudag þá nenni ég alla jafna ekki að hanga mikið í tölvunni!
Þetta endurspeglast líka í því hversu lítið ég hef verið inni á MSN síðastliðin misseri.

En eins og áður sagði mun verða breyting á þessu í von um að keppnin verði sem allra skemmtilegust!
Endilega segið erlendum vinum ykkar frá því!!!

Stelpan

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Fréttaflutningur ársins

Alveg er ég sannfærð um að blaðamaðurinn sem skrifaði meðfylgjandi frétt verður tilnefndur til einhverskonar blaðamannaverðlauna fyrir hreint framúrskarandi fréttaflutning.

Fréttin - sem ég tók orðrétt af mbl.is - er á þessa leið:
"Umferðarljósin á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar hafa verið biluð í rúma viku. Verið er að bíða eftir varahlutum í ljósin en ekki liggur fyrir hvenær þau muni komast í samt lag. Lögreglan segir ástandið bagalegt."

Spurning að benda viðkomandi á að huga að öðru framtíðarstarfi...?!

Stelpan

mánudagur, janúar 21, 2008

Versti dagur ársins

Samkvæmt þessari frétt á mbl.is er dagurinn í dag versti dagur ársins.

Í dag á samblandan af vondu veðri, skuldahala eftir jólin, sviknum áramótaheitum, þrekleysi, lítillar löngunar til að grípa til aðgerða og lélegum launum víst að ná hámarki.

Ekki get ég séð að dagurinn í dag sé eitthvað mikið verri en allir aðrir.
Í gær var ég ekki haldin sérstaklega mikilli löngun til að grípa til neinna aðgerða - og samkvæmt spánni á veðrið að vera verra á morgun en í dag. Ég veit heldur ekki til þess að launin mín breytist mikið frá degi til dags!

En engu að síður getur maður glaðst yfir því að versti dagur ársins er að kvöldi kominn og jafn slæmur dagur mun ekki berja að dyrum fyrr en eftir ár!
Húrra fyrir því!

Stelpan

mánudagur, janúar 07, 2008

2008

Nú árið er liðið...

Ég gæti tekið mig til og skrifað stuttan pistil um árið sem var að líða og þær væntingar sem ég ber til ársins sem var að byrja... en ég nenni því ekki!

Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér árið 2007 hjá mér er því bent á fyrri bloggfærslur.

Hins vegar vil ég benda á nýjan link á síðunni en það er linkur á 3-burana sem hún Ása frímó var að eignast nú í lok desember!
Talandi um krúttsprengjur dauðans!

Einnig er búið að skíra einkaerfingja Svöluson - hann má finna undir nafninu Hilmar Björn Davíðsson hér til hliðar.

Stelpan

mánudagur, desember 17, 2007

Vika í jól

Ég er öll í myndböndunum þessa dagana.

Í þetta skipti er það hin klassíska jólaauglýsing frá Kók sem alltaf vekur hinn sanna jólaanda.



Stelpan

föstudagur, desember 14, 2007

Fagur söngur

Það yljar manni á illviðrisdögum sem þessum að hlusta á fagran jólasöng.

Því ætla ég að deila þessu myndbandi með ykkur.
Eflaust hafa margir heyrt lagið áður en það er enginn annar en stórvinur minn hann Eric Cartman úr South Park sem hér syngur fyrir okkur "O Holy Night".

Myndbandið sjálft er svosem ekkert til að hoppa hæð sína yfir - en söngurinn er fagur!
Njótið!



Stelpan

miðvikudagur, desember 12, 2007

Í aðdraganda jólanna

Nú - þar sem ég er formlega orðin meistari finnst mér vel við hæfi að deila ögn af visku minni með hinum almenna borgara.

Eftirfarandi lista rakst ég á uppi í Skógarhlíð. Þetta er listi sem ég hef reyndar séð áður en nú get ég staðfest - sem meistari - að allt sem þar stendur er vissulega satt og rétt. Þessi atriði eiga sérstaklega við á þessum árstíma og því er gott að hafa þau í huga.
  • Matur sem maður borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur.

  • Þegar maður borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem maður borðar umfram hina.

  • Matur sem neytt er af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur.

  • Því meira sem maður fita þá sem maður umgengst daglega - þeim mun grennri virðist maður sjálfur.

  • Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur, hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.

  • Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur því þær molna úr þegar bitið er í þær.

  • Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum og innan úr skálum eða það sem ratar upp í mann á meðan maður eldar inniheldur ekki kaloríur vegna þess að það er liður í matseldinni.

  • Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta, næpur = hvítt súkkulaði).

  • Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar.
Ég vona að þessi staðreyndalisti gagnist fyrir jólin!
Njótið!!!

Stelpan