Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, september 28, 2004

Hangs

Ég sit núna upp í Öskju, nýja náttúrufræðahúsinu, og er að láta tímann líða.

Þó held ég að í stað þess að kalla þetta hús náttúrufræðahús ætti að kalla það náttúruhamfarir!! Það er ekki einn hlutur sem er í lagi! Mér finnst að það ætti að taka arkítektinn, hengja hann upp á nasahárunum og flengja hann!!! Það eru sko ófáar stundirnar sem ég hef leyft þessu að fara í taugarnar á mér! En þetta skal ekki vera ein af þeim!

Allavega, ástæðan fyrir því að ég hangi hér eins og einhver gúrka er sú að ég þarf að sækja Nínu systir út á flugvöll eftir tæpan klukkutíma og á þessum tíma dags þá bara nenni ég ekki að fara út í umferðina svo þess í stað hangi ég hér!

Síðan er bara kominn miðvikudagur á morgun!Ef maður fer að fylgjast svoldið með því þá tekur maður eftir því að það er alltaf miðvikudagur!!! Þetta er eitt af því mörgu sem ég lærði þegar ég (og Erna og Guðrún) byrjuðum í háskólanum!Málið er það að laugardagar og sunnudagar eru helgi - maður kvartar ekki yfir svoleiðis. Föstudagar eru tæknilega séð helgi svo þeir sleppa líka. Á fimmtudögum er næstum því komin helgi svo þeir eru líka allt í lagi. Mánudagar og þriðjudagar eru svo stuttu eftir helgina að þeir líða eins og ekkert sé svo þá er ekkert eftir nema miðvikudagur!

Annars eru miðvikudagar fínir þessa önnina, nánast enginn skóli - get nú ekki kvartað yfir því!

Anyways, ég er hætt þessu rugli

Stelpan