Píslargangan
Ég gerðist svo fræg í gær að horfa á The passion of the Christ.
Þetta er ein af þessum myndum sem maður verður víst að sjá svo ég harkaði það af mér að horfa á hana í gær. Ég verð nú bara að segja að hún kom mér svoldið á óvart, var ekki nærri því eins leiðinleg og ég bjóst við en á hinn bóginn var hún alveg ferlega blóðug!
Ég er að segja ykkur það, ef ég hefði verið Jesú þá hefði ég nú ekki leyft þeim að fara svona með mig - ég hefði galdrað eitthvað! Svo var maður hálft í hvoru að bíða eftir því að það kæmi manni eitthvað á óvart - Jesú myndi taka eitthvað Matrix-flipp, lemja alla gaurana og sleppa eða eitthvað en nei, allt kom fyrir ekki og Jesú dó á krossinum (hálf fyrirsjáanlegt).
Annars var það eitt sem ég hreinlega fattaði ekki!
Ok, þeir sem eru ekki búnir að sjá myndina og vilja ekki að ég skemmi eitthvað (veit samt ekki alveg hvað það gæti verið, we all know the story) - lítið undan!
Í gegnum myndina kom oft fyrir ógeðslega creepy gaur sem var geðveikt fölur og kinnfiskasoginn, hann var í byrjun myndarinnar að segja Jesú að hann ætti ekki að láta handtaka sig og svo öskraði hann brjálað þegar Jesú dó.
Hver var þetta?!
Átti þetta að vera djöfullinn eða guð eða einhver andleg vera eða hvað?!
Ég var alls ekki að átta mig á þessum gaur!
Ef einhver veit hvaða félagi þetta var - feel free to share!!!
En jæja, ég er hrædd um að næringarfræðifyrirlesturinn geri sig ekki sjálfur svo ég held hætti þessum guðlegu hugleiðingum og fari að snú mér að honum!
Stelpan

<< Home