Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, september 27, 2004

Í upphafi var orðið!!!

Já krakkar mínir, það hlaut að koma að því að stelpan fengi þrá til að tjá sig opinberlega!
Annars tók ég þessa stefnu í lífinu aðallega til þess að fólk sem býr í útlandinu geti nú fylgst með og tekið virkan þátt í mínu lífi - ég býst við mikilli meðvirkni!
Það er skemmst frá því að segja að þessi síða er nú svosem ekkert forritunarundur en þar sem mín kunnátta til forritunar er mjög takmörkuð (to say the least) er ekkert víst að það breytist í nánustu framtíð!
En nóg um það, ég ætla að láta þetta nægja í bili!
Megið þið vel njóta, að eilífu, amen!

Stelpan