Afmælisbarn dagsins
Ég vil byrja á að óska honum Narfa stórvini mínum til hamingju með afmælið!
Guttinn er 22 ára í dag. Þessa stundina er hann staddur í Danmörku í námi, þykist vera eitthvað að læra, ég held hann sé nú aðallega að drekka bjór!
Ég verð þá bara að senda afmælisknúsið og -kossinn af klakanum yfir á meginlandið - til lukku Narfi minn!
Strákarnir (Ísleifur, Árni og Óli) ásamt eiginkonunum eru að fara út til hans á eftir. Mig grunar sterklega að það verði drukkinn einn eða tveir bjórar í þeirri ferð!! Það verður ábyggilega hörku stuð!
Og á meðan allir eru úti í DK að drekka bjór og skemmta sér verð ég heima að læra!
Samt ekki allan tímann, á morgun mun vera brjálað partý hjá Díu frænku og Jóni Árna (ze husband) og þá verður sko tjúttað - engar hagamúsaveiðar eða þess háttar (kannski silfurskottuveiðar - kemur allt saman í ljós á morgun!)
Smá saga - Ég fór á sundæfingu í gær (kannski ekki frásögu færandi) nema að þegar ég kom þá var búið að loka fyrir helminginn af skápunum og sá helmingur sem var opinn - það var rennandi blautt gólfið þar?!
Allt í lagi, hélt mína leið í sturtu og þar var búið að loka fyrir alla sturtubásana nema einn svo fólk þurfti að standa og bíða eftir að það losnaði sturta!!!
Það sem ég ekki skil í þessu öllu saman er það að klukkan var rétt fyrir 9 og góður einn og hálfur klukkutími þangað til laugin lokaði - kellingarnar voru bara að flýta fyrir sér að þrífa og þeim lá svo mikið á að fólk komst ekki að!
Þessar kellingar niðrí Laugardalslaug ganga stundum alveg fram af manni!
Sem þögul mótmæli fór ég í skóna inní klefa þegar ég fór uppúr og skildi eftir mig skóför!
Þær hugsa sig tvisvar um áður en þær gera þetta aftur!!!!!
Já það borgar sig sko ekki að abbast upp á stelpuna!
Ennnnnn, ég þarf víst að fara upp í skóla að klára að gera þetta ógurlega plakat í atferlisfræði.
Until we meet again
Stelpan

<< Home