Afrakstur helgarinnar
Það fór eins og ég hafði spáð, það var kíkt í bíó í gær. Við Clara skelltum okkur á Anchorman, hún var bara nokkuð góð!
Síðan kíktum við reyndar niðrí bæ, ég veit samt ekki hvort það flokkast sem alvöru því það var ekki ælt og það var ekkert remó! Það þarf að leggja þetta fyrir nefnd!
Hitti fullt af góðu fólki í bænum: Nínu beibí, Rúnar, Dagbjörtu, Svenna og co og nokkra góða til viðbótar, enda var bærinn bara nokkuð þéttur af fólki!
Ég er dáldið hrædd um að dagurinn í dag verði með allra rólegasta móti enda ekki margt hægt að gera sér til dundurs á sunnudögum.
Það getur verið að maður ráðist í það vonlausa verkefni að leita sér heimilda á netinu til ritgerðaskrifa eða jafnvel kíki í svosem eina bók. Finnst það þó ólíklegt!
Síðan langar mig að óska honum Ísleifi mínum til hamingju með daginn, er 22 ára í dag kappinn!
Knús frá stelpunni!!!
Allavega, megið þið öll eiga góðan letidag!
Stelpan

<< Home