Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, október 15, 2004

Bíla-gewesen!

Bíllinn er bilaður!

Þar sem ég er stelpa (með bleika bloggsíðu) get ég ekki greint bilunina nánar!
En ég get hins vegar sagt hvernig hún lýsir sér - einkennin eru að hann drepur á sér!
Hann drepur á sér alltaf þegar ég er ekki að gefa bensíninu inn!

Alltaf þegar ég stoppa bílinn (rautt ljós, gangbraut o.þ.h.) þá drepst á bílnum.
Ég var einmitt að koma úr skólanum áðan og það byrjaði á því að það drapst á bílnum svo ég þurfti að starta honum aftur - og gefa honum veeeeeel inn!
Síðan bakkaði ég út, þegar ég þurfti svo að stoppa og setja í 1. gír þá drap hann á sér.
Svo keyrði ég af stað og þurfti að stoppa fyrir strák sem var að labba yfir bílastæðið - bíllinn drap á sér. Loks var ég að fara út af bílastæðinu, þurfti að stoppa fyrir bíl sem var að koma - bíllinn drap á sér! Svo loksins þegar ég náði af stað þá leit ég við og sá að strákurinn (sem ég var að hleypa) stóð og fylgdist með stelpunni sem obviously kunni ekki að keyra og var búin að drepa á bílnum fjórum sinnum - án þess að komast af bílastæðinu!!!!
Ég var ekki lengi að gefa í og drulla mér í burtu!!
Ruglið!

Síðan vorum við í verklegum tíma í atferlisfræði áðan. Verkefni dagsins var að fylgjast með ákveðnu mökunaratferli stokkanda. Að sjálfsögðu var farið niður á Tjörn að fylgjast með öndunum þar.
Við vorum eins og fífl!
Kennarinn stóð og var að benda okkur á - "þarna eru gæsir, og þarna lengra eru svanir með unga"!!
Fólk sem var að labba framhjá horfði á okkur eins og við værum smábörn í skólaferðalagi - sem það er ekki laust við að við höfum verið!!!
Enn meira rugl!

Allavega, ég ætla að fara að borða, góða helgi!

Stelpan