Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, október 08, 2004

Ble

Vá hvað minns er þreyttur!
Hvernig fær það staðist að það er svona mikið að gera!?! Maður er hreinlega að drukkna!!
Ég sé fram á skóla langt fram á kvöld alla næstu viku - bara svona eins og þessi vika var!
Fjandans fjári!

En nóg um það.
Nú er föstudagur og þótt ég þurfi að læra slatta um helgina þá skal maður engu að síður gera sér dagamun!
Planið fyrir helgina er það að í kvöld skal ekkert gert! Ég er farin að hlakka svoldið til!
Svo annað kvöld er afmæli hjá Freyju - þar verður sko tjúttað fram á rauða nótt!!! Ég er farin að velta því svoldið fyrir mér í hverju ég á að vera, en þeir sem til þekkja vita það að ég á það til að þjást af vægum valkvíða þegar að svoleiðis hlutum kemur - en sá valkvíði er aðeins af hinu góða og ekkert til að óttast!

Svo er ég líka að gæla við þá hugmynd að kíkja einn hring eða svo í Kringlunni/Smáralindinni á morgun og eyða smá pening - liður í "að gera sér dagamun" áætluninni - sama þótt maður hafi ekki alveg efni á því! (Erna, back me up here!)

Anyways, þeir sem ætla að detta í það í kvöld: Góða skemmtun og megi vera ælt!

Later

Stelpan