Bleikt hvað?!
Sko, ég veit að síðan mín er bleik - en scheisegruppe!
Hún Dagbjört stórvinkona mín var að koma sér upp bloggi og halelúja það er bleikt! Hún er með eitt það beiskasta bleika blóm sem ég hef séð lengi! Það er greinilegt að maður er farinn að smita þessum bleiku tendensum út um allan bæ því ef maður er búinn að smita Dagbjörtu af því - hvern er maður þá ekki búinn að smita?!?!
Allavega, allir að kíkja á blómið hennar Dagbjartar á http://dabba.blogdrive.com
Á eftir er ég að fara í hin alræmdu tilraunadýr&vísindarannsóknir. Að þessu sinni verður níðst á kanínum. Þær verða sprautaðar í bak og fyrir að kúnstarinnar reglum - ég veit samt ekki hvort þær þurfi að láta lífið fyrir þessa tilraunastarfsemi - við skulum bara biðja fyrir þeim!
Ég held að það sé óhætt að fullyrða að öll þessi önn hjá mér - bad for rodents!
Heyrðu, talandi um scheisegruppe - það var ein slík í sundi í gær!
Sko, gelgjur heimsins sameinist!!!
Laugardalslaugin var stútfull af gelgjum í gærkvöldi, bæði íslenskum og erlendum, ábyggilega einhverskonar skólaferðalag eitthvað!
Flestar íslensku stelpurnar voru í pínubikiníum og svo hlýrabol yfir? Af hverju ekki að vera bara í sundbol?! Og útlensku stelpurnar skiptust á að fara í eina sturtu alveg í horninu - þar snéru þær sér út í horn, girtu sundbolinn niður á mitti og svo aftur upp, svo hlupu þær og náðu í handklæðið sitt til að skýla sér?!
Þetta þótti mér alveg stórmerkilegt athæfi hjá þeim!
Síðan vorum við í pottinum (sem var by the way eins og í fuglabjargi) og ofan í hann kemur ein, tja, nokkuð vel þybbin stelpa. Hún var í stuttbuxum og stuttermabol, með alveg sítt hár og já, frekar ómyndarleg greyið. Það var ekki fyrr en eftir góða stund að við komumst að því að þetta var strákur!!! Það var meira að segja einn gaur sem gerði sér ferð upp úr pottinum til að elta hann þegar hann fór upp úr - bara til að sjá inn í hvorn klefann hann færi og jújú, þetta var strákur!
Þetta lið var allt saman mjööög vafasamt!!!
En hvað sem því líður, ég þarf víst að fara að græja mig og gera fyrir skólann, nóg að gera í skólanum í dag - ætli maður verði ekki að til 7!
Stelpan

<< Home