Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, október 19, 2004

Bloggæðið

Það er allt að verða vitlaust meðal netverja! Núna er hin Nínan líka búin að koma sér upp bloggi - það er allt að gerast gott fólk!
Ég hvet alla eindregið til að kíkja á Nínu á struturinn.blogspot.com - já þið heyrðuð rétt, strúturinn.blogspot.com!
Nína hefur ákveðið að gangast við strútnum og kenna sig við hann í þokkabót! Það má líka segja að strútssagan sé ein fyndnasta saga seinni tíma!!!
Ég er búin að segja þessa sögu svo oft að ég efast um að einhver eigi enn eftir að heyra hana. En þeir sem ekki þekkja til sögunnar geta til dæmis fundið sér síðasta tölublað af tímaritinu Ský. Þar má (á blaðsíðu 54 minnir mig) finna stuttu útgáfuna af strútssögunni!!!

En að öðru, ég hef, eins og svo margir aðrir, sent inn formlega kvörtun vegna veðursins - enn eina ferðina!
Ég er farin að halda að þeir taki ekkert mark á þessum kvörtunum - það eina sem uppskerst er enn verra veður!
Þó verð ég að segja að ég er mjööög ánægð að ég fór á hinar brjáluðu músaveiðar í síðustu viku en ekki þessa vikuna! Það var þó gott veður þegar við fórum - allir sem þurfa að fara í þessu veðri fá samúð mína alla!
Ég var að lesa bloggið hjá honum Gumma Gauta en hann var einmitt á svipuðum músaveiðum og ég - nema hans músaveiðar áttu sér stað í herberginu hans og voru víst alveg æsispennandi! Ég ætti kannski að reyna að fá hann með okkur næst þegar farið verður á músaveiðar?!?!

Jæja, enn á ný verð ég að deila "ánægju" minni með þetta nýja fína Náttúrufræðahús sem búið er að troða okkur inn í!
Fyrir þá sem ekki þekkja til þá snýr aðalinngangurinn að Norræna húsinu og samanstendur af 3 voða flottum glerhurðum. 2 metrum fyrir innan það koma svo 3 aðrar alveg eins glerhurðir. Voða lekkert allt saman.
Það sem fábjáninn hann doktor maggi ekki áttaði sig á er að á Íslandi er og verður rok! Let's be honest - þetta er rokrassgat sem við búum í!
Alltaf þegar rokið er nógu mikið (ég held meira að segja að áttin skipti ekki máli) þá fjúka helvítis hurðirnar upp og það verður skítkalt í skólanum! Í fyrra þá náði meira að segja að snjóa hálfa leið inn í skólann!
Svo núna þegar ég kom í skólann þá var miði utan á aðalinnganginum - "Aðalinngangur lokaður vegna veðurs, vinsamlegast notið einn hliðarinnganginn" - og by the way þá eru hliðarinngangarnir ALLTAF læstir og við megum ALLS ekki fara inn um þá!
Ekki nóg með það heldur þegar ég var búin að hlaupa fyrir hornið og inn um hliðarinnganginn þá labbaði ég framhjá aðalinnganginum og sá að ein af innri glerhurðunum var brotin! Og ekki bara brotin, heldur alveg í small og það var búið að sópa henni upp og henda í ruslið!
-andvarp-
Það má alveg treysta á það að það verður sett upp önnur alveg eins hurð sem alltaf fýkur upp og sinnir á engan hátt sínu starfi sem hurð!
Miðað við allt það sem er að þessu húsi og þarf að laga þá held ég að það sé hagkvæmara að rífa draslið og byggja bara nýtt sem í alvörunni virkar og er í lagi!!!
Ég get svo svarið það!!

Stelpan