Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, október 05, 2004

Dagurinn

Úff, þetta er búinn að vera langur dagur - skóli frá 8 til 7 með tveim stuttum pásum. Svo verður skóli á morgun frá 1/2 10 til 7 með engum pásum svo það er nóg að gera á þessu heimili!
Já þessar einingar uppí háskóla kosta sko blóð, svita og tár - það er ekkert gefins á þeim bænum!

Svo vildi þannig til að það voru pylsur í kvöldmatinn heima hjá mér. Ég fékk mér sko remó!
Í tilefni þess langar mig að kasta kveðju á Steinunni Margréti í Danmörkinni - lifi remóið!

Ég var áðan í verklegum tíma í tilraunadýrum & vísindarannsóknum (það hljómar miklu flóknara en það er í raun) og við vorum að æfa okkur í að sprauta rottur og taka úr þeim blóð og svona (síðast voru það mýs). Það var nú allt saman mjög áhugavert og einfalt. Síðan fórum við að taka blóð úr hjartanu á rottunni og það fannst mér svoldið creepy! Að stinga bara á brjóstkassann og reyna að hitta í hjartað! Það tókst reyndar í fyrstu tilraun - eins og maður hafi aldrei gert annað! Svo þegar búið var að sprauta og stinga á allar helstu æðar og grey rottan var farin að líkjast gatasigti var hún svæfð. Aumingja rottan! Ekki skemmtilegt hlutskipti í lífinu að vera svona tilraunadýr!

En börnin góð, ég ætla að klára að horfa á Judging Amy og svo ætla ég í háttinn.
Framhald síðar.

Stelpan