Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, október 18, 2004

Dugnaður

Það er greinilegt að tjáningarþörf mín er mikil og rík í dag!

Ég er búin að bæta inn nokkrum tenglum - þeir eru eins mismunandi og fólkið sjálft!

Ég bætti til dæmis inn henni Sveinbjörgu. Fyrir þá sem ekki vita þá er hún kærastan hans Gumma frænda, þau eru útí Svíþjóð að læra.
Það sem gerir þessi tvö sérstaklega merkileg er sú staðreynd að þau eiga von á litlum erfingja!!
Þar sem ég er ekkert búin að heyra í frænda síðan þetta kom í ljós þá langar mig bara að óska þeim innilega til hamingju!!! Allir á klakanum eru mjög spenntir!

Við erum einmitt búin að vera að leika okkur að því að kalla mömmu og systur hennar ömmusystur - þar sem þær verða það eftir nokkra mánuði. Þeim þykir það ekkert sérstaklega fyndið!

Allavega, nú er ég hætt í dag, ég lofa!

Stelpan