Gymmið hvað?!
Ég var á ógurlegum hagamúsaveiðum áðan. Við gengum Kjalarnesið þvert og endilangt, í stígvélum og pollagalla, stökkvandi yfir skurði, öslandi í gegnum mýri svo þar að auki var hlýtt og rigningin sem átti að vera var engin!
Ef einhver er að velta því fyrir sér hvernig svona veiðar fara fram þá er það beisikklí þannig að við löbbum á milli gildra og tékkum hvort eitthvað hafi veiðst - þetta hljómar miklu meira spennandi en það er í raun!
Það var nú reyndar ekkert brjáluð veiði í dag sem var fínt því annars hefðum við verið miklu lengur að!
Annars er það helst í fréttum að í dag er miðvikudagur, eins og svo oft áður.
Venjulega myndi það þýða að í kvöld væri Footballers wifes en nei, serían er búin svo það er ekkert Footballers wifes fyrir mig í kvöld.
Þessir þættir eru bestir!!
Næst á eftir Bold!!!
En jæja, ég nenni ekki að tala við ykkur, ég er farin að horfa á ER.
Stelpan

<< Home