Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, október 10, 2004

Helgarpistillinn

Þá er enn ein helgin liðin og ekki margt uppskorið!

Fór með Nínu Kr. og Breka (4 ára syni hennar) í Kringluna í gær og ætlaði að reyna að eyða pening. Þegar við vorum búnar að hlaupa á eftir Breka 7 hringi í Kringlunni og eyða nánast engum pening drifum við okkur heim því við vorum orðnar uppgefnar!

Síðan eyddi ég fyrri hluta dagsins í dag uppí skóla að reyna að gera verkefni. Ég legg áherslu á að reyna að gera verkefni! Við skoðuðum draslið fram og aftur og komumst að þeirri niðurstöðu að við hefðum lítið sem ekkert í höndunum! Svo það varð lítið úr verkefnavinnu!

Afrek helgarinnar voru því ekkert sérstök!

Síðan var afmæli hjá Freyju í gær, það var bara hörku stuð eins og við var að búast.
Einn gaurinn var með gítar og það var sungið á fullu, eða skal segja mismikið á fullu! Ein stelpan var gjörsamlega að missa sig! Ég held hún hafi haldið að Idol dómnefndin hafi verið á staðnum!Varahreyfingarnar einar voru svakalegar! Og gaulið í henni - þetta var bara hávaði! Mig langaði mest að öllu að fara til hennar og biðja hana um að keep it down please! En ég hafði það ekki í mér, stelpan er svo kurteis!!!

Síðan var kíkt á Hressó (surprise surprise) og svo yfir á Gaukinn þar sem Í svörtum fötum voru að spila með Jónsa í broddi fylkingar! Alltaf stuð á svoleiðis dansleik!!!

Hins vegar var ég ekki að fíla þessa brjáluðu monsúnrigningu sem var í gærkvöldi og nótt!!!
Það var enginn búinn að fá leyfi hjá mér fyrir þessari rigningu! Mér finnst eins og það sé svoldið verið að sniðganga mig í þessum málum! Það þarf að leggja þetta fyrir nefnd!

Allavega, see you when you get there!!!

Stelpan