Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, október 27, 2004

Hey kanína

Já það voru sko kanínur í gær.
Ég hef samt mínar efasemdir, hefði frekar haldið að þetta væru einhverjir sterahérar því kræst hvað þær voru stórar! Þetta voru sko ekki litlu sætu kanínurnar sem skoppa um í Öskjuhlíðinni, ó nei, síður en svo! Þessar kanínur voru sko feitabollu risakanínur - ég hef bara aldrei séð annað eins! Ég efast um að þær geti hreyft sig þessar!
Allavega, eins og við var að búast voru þær hálfgötóttar eftir að við vorum búin að ljúka okkur af með þær, þó var það mjög misjafnt hvernig þær komu út úr þessu greyin.
Fyrir þá sem ekki vita þá tekur maður blóð úr kanínum og sprautar þær oftast í bláæðina í eyranu. Það vildi ekki betur til en svo að strákarnir við hliðina á okkur stungu í gegnum eyrað!!! Það má því segja að sú kanína hafi fengið gat í eyrað í gær!
Karlmenn!!!

Því miður báru bænirnar ekki árangur því í lok tímans þurfti ein kanína að láta lífið.
Það var reyndar alveg tilfallandi held ég. Einhver hafði komið með hana upp á Keldur til þess að láta svæfa hana í stað þess að sleppa henni í Öskjuhlíðina. Svo að í enda tímans var hún svæfð og krufin. Rest in peace.
Það má taka það fram að þetta var svona venjuleg lítil sæt kanína, bara svoldið horuð, en við hliðina á hinum var hún eins og eitthvað dvergörverpi!
Greyið litla.

Síðan vorum við almennt að skoða svona tilraunaaðstöður og je minn, við vorum að skoða músageymslurnar og þar voru nokkrar sem voru ný búnar að eiga unga.
Mússímússímússí!!!
Krútt dauðans! Sumir voru alveg nýnýfæddir, voru innan við cm og alveg sköllóttir, aðrir voru 10 daga gamlir, komnir með hár og ógeðslega sætir!

En jæja, ætli ég verði ekki að fara að vinna í ógurlegu ritgerðinni minni um makaval manna! Ég er svoldið hrædd um að kennarinn eigi eftir að hrauna yfir ritgerðina okkar - hún veit ekkert hvað hún vill, það eina sem hún veit er að það sem maður skilar inn er það sem hún ekki vill!!!
-andvarp-

Stelpan