Nettur pirringur
Atferlisfræðikennarinn minn tók upp á því í dag að setja okkur fyrir smá verkefni - eins og það sé nú ekki nóg að gera í skólanum fyrir!
Verkefnið er á þá leið að maður á að lesa ákveðnar blaðsíður í bókinni og svo eiga að vera 3-4 saman í hóp sem draga aðalatriðin úr kaflanum saman í eina blaðsíðu. Sounds simple enough! Og það væri það ef ekki væri fyrir þá staðreynd að það á að skila verkefninu í síðasta lagi á morgun!!!
Í síðasta lagi á morgun!!!
Glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir því að ég var í skólanum til 7 í dag. Verð reyndar bara til 3 á morgun en þá verður minn hópur bara að gjöra svo vel og finna sér tíma til þess að gera þetta verkefni!
Ég þoli ekki þegar kennarar átta sig ekki á því að maður er í fleiri fögum!!!
Þessir sömu glöggu lesendur og talað var um að ofan vita það að í gær var ég að sprauta í rottu og níðast á henni uns hún var látin deyja!
Í dag var ég svo í verklegum tíma að kryfja hagamús.
Not a good week for rodents!
Mér finnst ég ekki gera annað en að myrða og kryfja saklaus nagdýr!
Svona er heimurinn harður!
Ennnn, ég ætla að fara að lesa þessar blaðsíður fyrir verkefnið ógurlega.
Ég vona að ég hafi eitthvað ögn skemmtilegra og bitastæðara að segja á morgun!
En ef ekki, þá verður bara að hafa það!
Stelpan

<< Home