Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, október 18, 2004

Ojsen

Akkúrat núna er skólabókardæmi um veður þar sem mann langar bara að sitja inni hjá sér undir teppi!
Brrrr hvað það er hryssingslegt!!

Ég get glöð sagt frá því að ég sit bara inni hjá mér og er að læra, eða læra og ekki læra, ég er búin að vera að dunda mér í fyrirlestri sem við erum að fara að halda á föstudaginn. Ég hef verið kosinn grafískur hönnuður fyrirlestrarins og tek þá stöðu mjög alvarlega!!!
Fyrirlesturinn að þessu sinni eru um makaval manna og það verður bara að segjast hann er nokkuð áhugaverður! Kannski ekkert sem kemur manni eitthvað brjálað í opna skjöldu en engu að síður ágætis efni (einn hópurinn þurfti til dæmis að gera fyrirlestur um mökunaratferli hornsíla!! Jækz!)

Svo þegar þessum fyrirlestri (og fylgjandi ritgerð) er lokið fer vonandi að hægja aðeins um í skólanum - about f****** time!!! Maður gæti jafnvel haft tíma til þess að kíkja í skólabækurnar! Þó skal ekkert fullyrða um það!!!

Og góðar fréttir - það er búið að gera við bílinn!!!
Það sem var að honum var ... allavega, það er búið að gera við hann!
Hann er samt ekki alveg 100% því það er eitthvað stykki bilað en hann ætti samt alveg að ganga ef vel er farið að honum!!
Allt að gerast!!!

Later

Stelpan