Rólegi pakkinn
Jæja, mikið er ég glöð að ég fór ekki of geyst í yfirlýsingar um rólega helgi - það var nefnilega tekin smá upphitun í gær!
Það var nú samt ekkert svo svaðalegt, nokkrir bjórar og kíkt við á Glaumbar - bara svona eins og það á að vera!
Við Nína Kr. fórum og hittum fólkið sem var búið að vera í afmælinu hjá Iðnskólanum allan daginn og well, við tvær vorum ca einum og hálfum kassa af bjór á eftir þeim! Mikill hressleiki í liðinu!
Þetta flokkast meira að segja sem alvöru fyllerí því það var ælt! Það var Óli sem tók það hlutverk að sér þetta skiptið í alveg hreint frábæru múvi! Skál fyrir Óla!
Hins vegar verður kvöldið í kvöld alveg rólegt, það verður pizza, snakk og svo Idol/Svínasúpa/Starsky & Hutch - allt að gerast!
En að öðru - einhverjar kvartanir eru búnar að berast ritstjórn varðandi þetta kommentakerfi sem fylgir síðunni.
Ég vil byrja á að taka það fram að ég bjó þetta kerfi ekki til - enda er slík kunnátta langt frá því að vera mér í blóð borin!
Það getur samt verið að maður reyni að redda sér einhverju betra - fer eftir hvort manni takist að blikka einhvern af þessum tölvu-forritunar-vinum sínum!!
En ef ekki þá verður fólk bara að lifa með þessu kerfi eins og það er - tough luck!
Síðan vil í benda á þá staðreynd að það er kominn október! OKTÓBER gott fólk!!!
Áður en maður veit af verða komin jólapróf og leiðindi!
Mér líst ekkert á þetta!
Allavega, góða helgi!!
Stelpan

<< Home