Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, október 12, 2004

Svindl og óréttlæti!

Hversu mikið svindl er það að Clara er að fara til New York að drekka cosmo og versla á meðan ég þarf að hanga hérna heima og læra fram á kvöld alla daga?!?!
Ég er ekki alveg nógu sátt við þetta!

Við erum einmitt að gera plakat í atferlisfræði, í rauninni ekkert svo mikið mál. En þegar litið er á þá staðreynd að við vorum að fá gögnin til að vinna úr í gær og eigum að skila á föstudagsmorgun - þá er þetta bara svoldið mál!
Í dag er það skóli allan daginn til 7 og svo á morgun erum við að fara að veiða mýs fram á kvöld - another bad week for rodents! Þá er bara eins gott fyrir okkur að massa fimmtudaginn því þetta plakat gildir 10% af lokaeinkunn!

Svo ofan á þetta allt saman þá erum við að gera ritgerð í atferlisfræði (10% af lokaeinkunn), fyrirlestur í atferlisfræði (enn eitt 10% af lokaeinkunn), ritgerð í vistfræði spendýra (15% af lokaeinkunn) auk þess sem það eru alltaf vikulega skýrslur í næringarfræði!

-andvarp-
Já ég á svo sannarlega bágt!

Nóg af kvarti

Stelpan