Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, október 09, 2004

Uss uss uss

Ég hefði nú betur farið varlega í yfirlýsingar um rólegt kvöld!

Ég var komin í joggarann og var í góðum fíling uppí sófa að horfa á Svínasúpuna þegar Nína Kr. kíkti í heimsókn.
Stuttu síðar var stelpan komin í djammgallann og á leið út á galeiðuna! Það þurfti nú engar brjálaðar fortölur!
Allavega, það var bara stuð! Það var greinilega allt að gerast í bænum í gær því ég sá alveg kreisí mikið af fólki sem ég þekkti: líffræðipakk, gamalt verzlópakk, sundpakk og svo að sjálfsögðu bara reglulega pakkið!

En, hversu fyndið var ædolið?!
Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar Helgi Einarsson félagi minn steig á svið og söng einhverja glataða vögguvísu alveg rammfalskt!!! Eða ég held allavega að það hafi verið rammfalskt, ég heyrði það ekki því ég hló svo mikið!!! Djöfull hlakka ég til að hitta hann á eftir og gera smá grín að honum!
Það eru svona hlutir sem gefa lífinu tilgang!!

Allavega, ég er hrædd um að peningarnir eyði sér ekki sjálfir - ætli ég neyðist ekki til þess að fara og gera það!!

Stelpan