Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Arg!

Eins og það sé nú ekki nóg að gera fyrir?!?!?!

Við fengum til baka síðustu skýrslurnar okkar í næringarfræði í dag.
Jújú, flot flott, toppeinkunnir og svona.
Samt var meðaleinkunnin mín lægri en nokkur einstök einkunn svo ég spurðist fyrir um af hverju það væri. Þá kom í ljós að það var ein skýrsla sem ég ekki skilaði og fyrir hana fæ ég bara 0!
Málið er samt það að ég sendi kennaranum email og sagði henni að ég hefði ekki komist í tímann og væri þar af leiðandi ekki með þær tölur sem til þurfti til að gera skýrslu - spurði jafnframt hvort ég ætti ekki bara að fá tölur hjá einhverjum öðrum eða jafnvel gera eitthvað annað verkefni í staðinn. Hún sagði mér að ég þyrfti þess ekkert, það væri hvort sem er bara 80% skilaskylda.
Ok, kúl. Ég gerði þá bara enga skýrslu.
Svo er það að koma í ljós allt í einu núna að ég þurfti bara víst að skila skýrslu! Svo ég krafðist þess að ég fengi einhverskonar smáverkefni svo ég gæti nú haldið meðaleinkuninni minni réttri!!! Þannig að þrátt fyrir að það sé allt bókstaflega að verða vitlaust í skólanum ætla ég að gera einhverja auka skýrslu núna!
Great!

Ég sit núna uppí skóla (Öskju) og er bókstaflega að frjósa! Hitamælirinn á símanum mínum sýnir 17° - ég hef samt sterkan grun um að það sé kaldara en það hérna!
Helvítis doktor Maggi með alla sína glugga!
Helmingurinn af húsinu er náttúrulega bara einn risastór gluggi svo ef það er kalt úti - þá er kalt inni og shittólínó það er kalt úti!!!
Er að bíða eftir að fara á einhvern fund út af þessari blessuðu ráðstefnu sem verður hérna um helgina og við erum skyldug að mæta á. Ég er reyndar að fara að vinna eitthvað hérna á morgun (kemur í ljós á fundinum við hvað en það verður áreiðanlega eitthvað leiðinlegt!) svo kannski sleppur maður vel undan þessu!
Og þar sem ég er farin að skjálfa ískyggilega mikið ætla ég að fara að dúða mig upp og fara á þennan ógurlega fund sem verður ábyggilega, eins og ráðstefnan sjálf, í leiðinlegri kantinum!
Frábært!

Stelpan