Burr!
Hversu kalt var upp í skóla áðan?!?!
Ég var að vinna á ráðstefnunni svakalegu. Vinnan mín var fólgin í því að sitja og skrá inn fólk.
Við sátum þarna tvö, og svona fyrstu tvo tímana var massa mikið að gera svo maður hafði varla tíma til þess að hugsa um kulda.
En síðan fór aðeins að hægja um og að sama skapi kólna í húsinu (vegna mikils umgangs inn og út) og við vorum bókstaflega að frjósa!!!
Sjitt maður! Ég var að gera heiðarlegar tilraunir til að skrifa kvittanir og það gekk bara upp og ofan - puttarnir voru orðnir svo stirðir að ég réð varla við þá!
Ég er eiginlega handviss um það að það hafi frosið í helvíti í dag! Og ef ekki í helvíti sjálfu þá get ég staðfest það að það fraus í litla-Helvíti (aka Öskju) í dag!!!
Því til staðfestingar þá tók ég upp símann minn á einhverjum tímapunkti í dag og hitamælirinn á honum sýndi 15°- samt var hann ofan í tösku, undir úlpunni minni og því ekki nærri því eins berskjaldaður fyrir ískuldanum sem nísti gegnum merg og bein!!!
Þegar loksins vaktinni okkar var að ljúka sátum við samanrekin, ofan á höndunum (sem voru grínlaust farnar að kala) og skulfum!!!
Svo þegar maður fór þá var næstum því hlýtt að koma út í tíu stiga frostið!!!
Ég kýs alfarið að kenna doktor Magga um þetta!!!
En svona grínlaust þá er það bara rugl hversu kalt er búið að vera úti!
Ég var á sundæfingu í gær og það lá við að ég drukknaði! Af hverju kann fólk að spyrja sig, jú sjáið til - þegar það er kalt úti þá taka snillingarnir niðrí laugum upp á því að hita laugina (sem gerir hana ógeð að synda í). Svo þegar það er -12° úti (eins og var í gær) þá verður gufan sem rís upp af lauginni svo ógeðslega massíf að hún er næstum því fljótandi!!! Svo þegar maður er að synda og er móður þá er þessi gufa algjör viðbjóður!
Þetta var bara fáránlegt!
Og á ég að segja ykkur hvað annað er fáránlegt?!
Helvítis verkefnið sem ég þarf að fara að gera núna í næringarfræði (en hefði öllu jafnan verið búin með fyrir 2 mánuðum)!!!
Ég ætla sko ekki að láta þær komast upp með að lækka mig niður fyrir eitthvað svona bull svo ég er farin að læra!
Later.
Stelpan

<< Home