Crazy crazy
Jæja, nú er allt farið að gerast!
Við skiluðum brjáluðu Vistfræði spendýra skýrslunni okkar í dag.
Þar með er ég búin að skila af mér öllum skýrslum, ritgerðum og annars konar verkefnum á þessari önn! Takk fyrir takk!!!
Svo fer ég í einn upprifjunartíma á fimmtudaginn og einhverskonar umræðu-verkefnaskila-tíma á föstudaginn and that's it!!!
Scheisegruppe!
Nú tekur bara við próflestur og próf sem honum fylgja!!!
Það er semsagt útlit fyrir að ég muni hanga mikið inni í joggaranum á næstunni!
Að sama skapi má gera ráð fyrir að ég muni ekki hafa neitt skemmtilegt að segja á næstunni - þ.e.a.s. ekki neitt sem ekki snýr að próflestrinum sjálfum!
Allavega, mamma og pabbi voru að koma heim úr útlandinu - það er nú varla frásögu færandi þar sem þau eru alltaf í útlöndum!
En það er nú alltaf gott að fá gamla settið aftur heim - sérstaklega þegar mamma er búin að vera duglega að versla!!! Það var nú einhver gróði úr þessari ferð!
Svo er ég að fara í klippingu á morgun.
Er orðin nett spennt!! Hárið mitt er orðið frekar óspennandi svo það verður kærkomið að fá lit- og klippiglöðu hendurnar hennar Nínu í lubbann!
Ég lét Nínu einmitt greiða mér fyrir laugardagskvölið - var brjálað flott - eins og kínahús vildi einhver meina - mér fannst það bara kúl!
En allavega, hætt í bili.
Stelpan.

<< Home