Ekki djamm!!!
Já gott fólk, ég veit þið eigið bágt með að trúa því en ég fór ekki að djamma í gær!
Þetta er fyrsti laugardagurinn síðan bara - alltaf - sem ég ekki djamma!
Þess í stað var ég heima, horfði aðeins á sjónvarpið og fór snemma að sofa!
Já maður getur þetta alveg!
En ég var semsagt að horfa á sjónvarpið í gær og aldrei þessu vant horfði ég á Spaugsstofuna.
Spaugsstofan er svosem ágæt - en hún höfðar ekkert brjálað til mín persónulega!
En það var einn brandari í gær sem mér fannst fyndinn, ég held hann sé ekkert svo fyndinn, ég er bara svona einföld!
Brandarinn var á þessa leið:
Rónarnir tveir, Bogi og Örvar, sitja á bekk og eru að tala saman.
Örvar: Já nú er Arafat bara dáinn! Hvað ætli þeir geri?!
Bogi: Veit ekki.
Örvar: Nei. Ætli þeir eigi ekki bara varafat!
Ahahahahaha, simple pleasures for simple minds!!!
Svo var annað sem mér þótti ekki síður fyndið.
Það voru semsagt úrslitin í Galaxy fitness í gærkvöldi, í beinni á Sýn.
Þar sem Svava massi var að keppa ákvað ég að kíkja þegar úrslitin voru og þá sá ég jafnframt úrslitin í karlaflokki.
Nú er ég ekkert brjálað inn í þessu öllu saman en ég vissi þó alveg að Arnar Grant myndi vinna þetta. Og svo fór. Flott flott, til hamingju, myndataka og svona.
Síðan bað kynnirinn hann um að spjalla aðeins við sig og þegar maðurinn opnaði munninn!!!
Ó mæ god!
Maðurinn er svo mjóróma!
Þetta var svo súrreaískt! Við erum að tala um brjálað massaða gaurinn, ýkt brúnn, með brjálaðan kjálka - maður bjóst alveg við hrjúfu karlmannsröddinni en nei - þetta var bara eins og Strympa væri mætt á svæðið!
Ég vældi úr hlátri!!!
Já það getur líka verið gaman að vera bara heima!
Svo vaknaði ég tiltölulega snemma í morgun og lagðist í þessa ritgerð - eina ferðina enn!
Staðan eins og er eru 2047 orð!
Nú vantar bara niðurlag, tilfæringar og annars konar dútl og þá er þetta komið!
Jessöríbobb!
En jæja, ætla að fara að gera ógagn í eldhúsinu!
Stelpan

<< Home