The End
Ójá, ég er búin með ritgerðina mína!
Í heild er hún 3.668 orð - en það er vegna þess að heimildaskráin er HUGE!!! Hún ein er einhver 909 orð svo talnaglöggir geta séð að ritgerðin í heild, án heimilda, er 2,759 orð!
Ha, og hafiði það, geri aðrir betur!!!
Það er alveg ótrúlegur léttir að vera búinn með þessa blessuðu ritgerð - hún er búin að hvíla á manni eins og mara síðan í upphafi annar!!!
Nú get ég farið að einbeita mér betur að öðrum ritgerðum, skýrslum og annars konar verkefnum sem flestum hverjum á að skila í næstu viku!!! Frábært!
Þessi helgi, sem kláraðist víst í gær, er mjög merkileg!
Ég fór ekkert að djamma OG ég vaknaði tiltölulega snemma báða dagana!!!
Það er samt alveg merkilegt - þau fáu helgarkvöld sem ég fer ekki að djamma er ég alltaf minnt á það af hverju ég sækist alltaf í að fara eitthvað út - það er aldrei neitt í kassanum!!!
Eins og á laugardaginn. Það var ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu svo ég setti Zoolander í.
Zoolander er snilldin ein!
Allavega, síðan var Zoolander búin og ég fór svona að fletta í gegnum sjónvarpsstöðvarnar. Það endaði með því að ég horfði á National Security á Stöð 2. Kannski engin hágæða mynd en svo sannarlega skásti kosturinn!!!
Þegar myndin svo var búin tók ég aftur upp fjarstýringuna og fór að fletta í gegn í leit að einhverju skemmtilegu.
Niðurstaðan var sú að skemmtilegast sjónvarpsefnið var National Security - aftur - á Stöð 2+!!!
Ég slökkti á sjónvarpinu og fór að sofa!!!
Hvernig er hægt að ætlast til þess að maður hangi heima allar helgar ef það er ekkert að gera!
Ég veit að einhverjir myndu segja mér að fara bara að læra en ég er með það prinsipp að læra ekki á föstudags- og laugardagskvöldum - nema ég sé að fara í próf daginn eftir!!!
Maður er sífellt með nagandi samviskubit yfir því að vera ekki að læra - föstudags- og laugardagskvöld eru bara time-out frá því!!!
Svo var Bikar núna um helgina.
Þeir sem ekkert vita um sund eða er alveg sama - sleppið bara þessum hluta!
Ég kíkti bæði laugardag og sunnudag upp í Höll og það var alveg brjáluð stemmning.
Ég var ekkert að keppa sjálf en ég held nú samt að Vadim hefði átt að láta mig synda - þrátt fyrir að ég myndi ekki fara á personal best þá hefði ég samt farið á betri tíma en sumar stelpurnar sem voru að synda!
Síðan var staðan sú að Óðinn var alveg búinn að vinna 2. deildina - þau voru það langt á undan.
Næst á eftir kom ÍRB-b og svo var Ármann rétt á eftir (við erum að tala um allt niður í 7 stig).
Stefnan var náttúrulega sett á að taka 2. sætið svo allt kapp var lagt á það!
Í boðsundunum áttu úrslitin að ráðast og viti menn - ÍRB gerði ógilt í kvennaboðsundinu!
Það var mikið fagnað á Ármannsbakkanum því þetta átti að vera komið - strákarnir okkar áttu miklu betri tíma en strákarnir þeirra!
Við hefðum kannski ekki átt að fagna alveg svona mikið!!!
Strákarnir okkar gerðu ógilt!!!
Djöfull var það blóðugt!
Vadim fór fyrsta sprett og ég sá að hann hreyfði sig aðeins á pallinum í startinu - ég sá dómarann sjá það - ég sá hana taka upp rauða miðann og dæma þá ógilda!!!!
Oj bara hvað það var svekkjandi!
Það sem var ennþá meira svekkjandi var að þeir rústuðu ÍRB liðinu - og það var ekki ólíklegt að við hefðum náð 2. sætinu en nei - ógilt!!!
Ekki nóg með það heldur þegar búið var að synda ógildingarsundin og öll stig voru lögð saman lentum við í 4 sæti!!
Ég er að segja ykkur það – hefði ég verið að keppa þá hefðum við rústað þessu!!!!
En allavega, var líka brjálað dugleg að læra um helgina – búin með ritgerðina, búin með auka-næringarfræðiverkefnið (sem by the way hækkaði árseinkunnina mina úr 8,5 í 9,4!!! – segið svo að það hafi ekki verið þess virði að gera það!), við erum komin mjög nálægt því að klára hjúges skýrslu í Vistfræði spendýra OG kennsla er alveg að verða búin!!!
Það þýðir bara að maður getur brátt farið að drekkja sér í próflestur – nú skulu próf mössuð!!!
En já, það er svo ótrúlega margt, ótrúlega merkilegt og spennandi búið að gerast síðan ég reit síðast að ég veit varla hvar ég á að byrja – eða hvort ég á nokkuð að byrja yfir höfðuð!
Ég held ég sleppi bara nánari sögum í bili – þarf að fara að klára helv… verkefnið sem okkur var falið í atferlisfræði!!
Stelpan

<< Home