Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, nóvember 08, 2004

Framhald á snilldinni

Eins löng og sagan af helginni var í gær þá er ég smátt og smátt búin að vera að fatta það að ég gleymdi alveg helling!

Til dæmis gleymdi ég að segja frá því að ég hélt alveg hreint magnaðan fyrirlestur um makaval manna - fyrirlestur sem ég gerði í atferlisfræði en það kom sérstök ósk um að ég myndi flytja hann aftur í bústaðnum.
Fyrst var ég nú dáldið efins af því let's face it - þetta er fyrirlestur sem ég gerði fyrir skólann og er því alveg takmarkað skemmtilegur! En ég passaði mig á því að sleppa alveg því fræðilegasta og leiðinlegasta og útkoman var alveg mögnuð! Ég þurfti nokkrum sinnum að gera hlé á fyrirlestrinum því fólk var liggur við að æla úr hlátri - myndskreytingarnar voru líka að gera góða hluti en eins og dyggir lesendur síðunnar muna þá var ég grafískur hönnuður fyrirlestrarins.
Þannig að fyrirlesturinn gerði góða hluti og eftir á spruttu upp einkar spekingslegar umræður varðandi þetta málefni. Síðan reiknuðum við BMI hlutfall fyrir strákana og svona þannig að þessi ferð var ekki bara skemmtiferð - ég held að allir hafi lært eitthvað!!!

Síðan áður en við fórum aftur á sunnudeginum var skrifað í gestabókina og ég held að það sé óhætt að segja að þeir sem eiga eftir að lesa það eiga ekki eftir að skilja baun!
Við semsagt bulluðum bara leikinn - þ.e.a.s. að okkur hefði snjóað inn og fólk hefði verið myrt og svona. Síðan skrifuðum við brjálað mikið af spurningum sem meikuðu mis mikið sens - spurningar eins og:
"Var Travis að tala við Harold eða var Harold að ljúga?!"
"Þurfti Lucy virkilega nýja skó?!"
"Eru allir bókasafnsfræðingar brjóstahaldaralausir?!"
"Af hverju var Daniel með mynd af Mariellu í vasanum?!"
"Hvernig skrifar maður John?!"
- og margar, margar aðrar góðar spurningar!
Svo í lokin skrifuðum við það sem kom í ljós:
"Dauðsfall Johns var slys en Mariellu var byrlað eitur - Jöklasalat. Alex var sæljón. Ein hóra, tvö brjóst, eitt rúm, ahhhhhh!"
Svo skrifuðu allir undir með karakternöfnum sínum - meira að segja Mariella sem hafði verði myrt kvöldið áður skrifaði undir!
Þetta var svo mikið bull - en samt meikaði þetta alveg sens fyrir okkur!
Brjálað fyndið!

Síðan var það drykkjuleikurinn sem mér tókst algjörlega að skilja ekki!
Hann er ekkert flókinn en ég bara hreinlega áttaði mig ekki á hvað var í gangi - við erum að tala um fullkomna meinloku!
Fólki fannst það ekki lítið fyndið!

Æ, þetta var allt saman svo fyndið!
Ég held ef ég fari að segja mikið fleiri sögur þá muni enginn skilja neitt því þetta var/er bilaður einkahúmor og sögurnar eru að miklu leyti had to be there sögur.

En, ég bíð spennt eftir að Stebbi setji myndirnar á netið - þær hljóta að vera góðar!

Allavega, það gerðist ekkert merkilegt í dag svo ég læt þessa snilld duga að sinni.

Stelpan