Frábært!
Ég vaknaði klukkan 6 í morgun - og það var ekki af fúsum og frjálsum vilja.
Ég semsagt vaknaði á ókristilegum tíma af því ég var með eitthvað dáið í auganu og var alveg að drepast - svo gat ég bara ekki sofnað meira! Fjandinn!
Ekki nóg með það heldur var ég rauð í auganu í allan dag! Great!!
En jæja, auganu er að batna og ég er öll að braggast svo það er allavega eitthvað!
Hurru, svo eru það kosningarnar ógurlegu - Bush vs Kerry!
Sjálf held ég nú að Kerry taki þetta, ég vona það allavega. Samt segja þeir sem þekkja þetta best að það sé ekki nokkur leið að spá til um það hver vinnur. Það er sko allt að gerast í ameríkunni!
Ég hugsa samt að ég vaki nú ekki mikið yfir þessu, kíki bara á fréttirnar á morgun - ef það verður þá eitthvað komið út þá, ætli þetta verði ekki eitthvað keis eins og síðast!
Það verður spennandi að sjá hvernig fer!
Allavega, eigið góðan miðvikudag - ójá það er miðvikudagur á morgun!
Stelpan

<< Home