Föstudagspistill
Já það er kominn föstudagur aftur!
Mér finnst eins og það hafi verið áðan sem við vorum að taka okkur til og bruna upp í bústað!
Ja, tíminn líður svo sannarlega hratt þegar maður er orðinn svona gamall!!!
Það verður girls night out í kvöld!
Er að fara til Nínu Kristjáns að hita aðeins upp og svo verður litið út á galeiðuna!
Ég var víst búin að ljúga því að einhverjum að ég ætlaði bara að vera róleg heima - en við vitum öll hvernig það fer!
Ég má samt ekki vera of lengi því ég VERÐ að vera dugleg að læra á morgun! Ég er búin að vera að trassa það að gera þessa blessuðu ritgerð og nú fer bara hver að verða síðastur!
Ritgerðin á að vera 2000-3000 orð. So far er ég komin með 46 orð!
En ég held að ég massi þetta nú alveg - þarf bara að koma mér í gírinn og þá fara hlutirnir að gerast!
En jæja, ég ætla að fara að drífa mig til Nínu og fá mér bjór - ef ég drekk ekki bjórinn, hver gerir það þá?!?!
Stelpan

<< Home