Góðan daginn!
Jæja þá er maður loksins vaknaður eftir langan, svo ekki sé minnst á bráðnauðsynlegan, nætursvefn!
Þegar ég vaknaði byrjaði ég á því að horfa á bold síðan á laugardaginn. Boj ó boj hvað það var spennandi!! Þetta var bara eitt mest spennandi bold sem ég hef séð frá upphafi (and that's a lot!!!). Ég geri mér grein fyrir að það eru ekki margir eins vel inní bold og ég þannig að ég skal sleppa öllum lýsingum en trust me - it was good!!
God this is good tv!!!!
Nú helgin.
Þessa helgi var hið árlega þing INSÍ (Iðnnemasambands Íslands).
Ég veit hvað þið eruð að hugsa - ég er ekki iðnnemi - hins vegar er Nína sys framkvæmdastjóri INSÍ svo ég var (í 4 skipti) starfsmaður þings (það þýðir að ég þarf ekki að hlusta á upplestur á ársreikningum og þess háttar en ég fæ að koma á þinghófið - jey!)
Það var reyndar bara mjög fínt á þinginu þetta skipti, hlutirnir gengu eins og vel smurt spilverk!
Að vísu var einn tímapunktur á þinginu þar sem mig langaði mest að deyja en það var eftir of langa samveru með ónefndum aðila sem er svo rólegur að það rennur ekki í honum blóðið! Eftir á þá skalf ég af pirringi og þreytu! Let's just leave it at that!
Á föstudagskvöldinu var tekin singstar keppni niðrá sambandi. Sumir höfðu vit á því að vera bara edrú og rólegir (ég). Aðrir höfðu ekki vit á að vera edrú og enduðu í ruglinu (Helgi).
Það var mæting kl. 9 á laugardeginum. Helgi mætti klukkan 1 - skeeeelþunnur, kýldur, með glimmer í hárinu og lykil í vasanum sem hann veit ekkert hvaðan kom!!! Og já, hann söng Like a virgin, ber að ofan, í singstar keppninni! Need I say more?!
Á laugardagskvöldinu var svo þinghófið ógurlega. Það var fínt. En samt, af því ég hvorki er í stjórn né reyki þá var ég svoldill outsider - þrátt fyrir að þekkja heilan haug af fólki þarna, það slapp samt alveg því ég var ekki eini outsiderinn - við hópuðum okkur bara saman.
Allavega, síðan var haldið niður í bæ á Póstbarinn. Af hverju Póstbarinn? Jú af því við höfðum einhver sambönd og gátum komið öllum 16 ára krökkunum inn þar. Eftir skamma veru á Póstbarnum var tekinn hringur í bænum. Sumir fóru bara beint heim (Nína sys), sumir hurfu án þess að láta vita (Nína Kr) svo þetta var bara mismunandi. Var svo bara komin heim í ból á tiltölulega skikkanlegum tíma - og ég sá sko ekki eftir því daginn eftir þegar ég var að vinna til hálf tíu!
En, þar hafiði það. Helgin í grófum dráttum.
Þar sem ég var að skrifa svaðilfarir helgarinnar rak ég augun í það að í dag er 1. nóvember. Það er kominn nóvember!!! Mér finnst eins og það hafi verið í síðustu viku sem ég var að kvarta yfir því að það væri kominn október! Ég held það sé hægt að slá því föstu að aldrei hafi nokkur mánuður nokkurn tímann liðið jafn hratt og október gerði!!!
Þar sem það er 1. nóvember í dag þá er ekki úr vegi að óska henni Ingu minni til hamingju með daginn en stelpan sú er 22 ára í dag!
Að því loknu er ég að spá í að fara að lesa mér aðeins til um far. Er að fara að skrifa ritgerð og ætli maður þurfi ekki aðeins að glugga í heimildir.
Stelpan

<< Home