Góðan og blessaðan
Jæja, löngu vöknuð og komin á lappir - ýkt dugleg að prenta út glósur en nenni bara alls ekki að fara að lesa þær!
Það fór eins og planað var með gærkvöldið - uppí sófa með lappir upp í loft að horfa á vont sjónvarpsefni.
Vonda sjónvarpsefni kvöldsins var bullmyndin Old school. Hún var alveg áhorfanleg. Hins vegar passaði ég mig á því að lenda ekki í Stöð 2+ pakkanum aftur svo þegar myndin var búin flýtti ég mér að slökkva á kassanum og trítla í háttinn!
Svo þar sem ég stend í meiriháttar útprentingum fannst mér það kjörin hugmynd að drepa tímann í tölvunni á meðan - ekki fer maður að læra!
Allavega, kíkti á póstinn minn og svona og je minn eini! Fékk póst frá Berglindi með link á mynd á netinu.
Erum við ekkert að grínast með píuna!!! Hvað er hún að gera?!?!
Satt best að segja er ég ekki viss um að ég vilji vita það!
Nei krakkar mínir, svona er þetta bara, þetta er svo mismunandi allt saman!!!
En að öðru, ég var ekki búin að deila sögunni um það þegar ég hrundi næstum því á hausinn í tröppunum upp í Öskju um daginn?!
Ég vil byrja á að taka fram að það var bara næstum því!
Ég var semsagt að labba niður tröppurnar og á einhvern stórfurðulegan hátt (sem ég get ekki útskýrt) tókst mér að fella sjálfa mig!
Ég byrjaði að steypast fram fyrir mig, en tókst á einhvern enn stórfurðulegri hátt að hoppa upp, gera eitthvað svakalegt múv, og lenda jafnfætis á næstu tröppu!
Þetta var ekkert smá súrrealískt! Minnti mig á þegar Óli tók handahlaupið í tröppunum í Verzló!
En það var semsagt hlegið dátt að þessum næstum því óförum mínum!!! Frábært!
Ég er viss um að ef ég vanda mig get ég fundið leið til þess að kenna doktor Magga um þetta - eins og allt annað!!!
Þess fyrir utan hefur nú ekki margt sem er frásögu færandi drifið á daga mína upp á síðkastið! Ég lifi ekkert neitt svakalega spennandi lífi!
-andvarp-
Allavega, þarf að fara að taka mig til. Er að fara í afmælisgjafaleiðangur.
Veit nú samt alveg að þessi afmælisgjöf verður ekkert vandamál - maður á í engum vandræðum með að finna eitthvað sem afmælisbarnið verður mjöööög ánægt með!!!
Stelpan

<< Home