Home sweet home
Já maður er víst kominn aftur heim til sín! Mjög gott mál!
Sem betur fer var nánast enginn stynkur í íbúðinni og ekkert skemmt! Ennþá betra mál!
En nóg um það! Ég er farin að hlakka svo ógeðslega mikið til að klára þessa bévítans önn að það hálfa væri hellingur!
Það er reyndar tæplega mánuður þangað til ég klára prófin en samt - kennslu fer að ljúka og ég er komin skuggalega nálægt því að klára öll verkefnin!
Ég er að spá alvarlega í því að taka næstu önn bara í leti! Ég er búin að klára svo margar einingar að ég þarf ekki að taka nema 11 einingar á síðustu önninni - og þar af verða 3 sem ég fæ fyrir námsferðina svo í rauninni þarf ég bara 8 einingar!!! Er að spá í að taka 3 kúrsa - 10 einingar - og láta það nægja. Mér finnst það alveg réttlætanlegt svona síðustu önnina í náminu!
Síðan þarf ég að fara að huga að því hvað ég ætla að gera að námi loknu!
Það líst mér ekkert á!
Ég er mikið búin að spá og ég er búin að finna alveg fullt, fullt af hlutum sem mig langar ekki að gera!
Listinn yfir það sem mig langar að gera er töluvert styttri, en maður þarf víst eitthvað að fara að ákveða! Við erum að tala um það að ég fæ valkvíða dauðans þegar ég fer út í ísbúð og þegar ég þarf að ákveða í hvaða fötum ég ætla um kvöldið - hvernig í veröldinni á manneskja eins og ég að geta ákveðið bara sí svona hvað mig langar að gera af mér í lífinu?!?!?!
-andvarp-
Þetta kemur vonandi allt saman á endanum. Í versta falli fer ég bara að vinna á kassa í Bónus, ég hef heyrt að það sé eitthvað laust þar!!!
En, en en en, ég ætla að fara að horfa á ER. Það var dáldið furðulegt hvernig síðasti þáttur endaði. Romano greyið varð víst undir þyrlunni sem hrapaði en enginn virtist sakna hans nógu mikið til að fara og leita að honum - það hlýtur að koma fram í þættinum á eftir!
Spennó!!
Stelpan

<< Home