Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, nóvember 29, 2004

Nóg að gera á stóru heimili!

Já, þar sem mamma og pabbi eru í útlandinu og koma heim á morgun tók ég mig til og gerði minni háttar hreingerningu. Sú hreingerning fór aðallega fram í eldhúsinu eftir lasagnað í gær - ég hreinlega nennti ekki að ganga frá öllu eftir matinn í gær!

Ég held að aldrei hafi ég gert jafn fátt á einum degi eins og í gær!!!
Eftir vel heppnað laugardagskvöld sem teygði sig langt inn á sunnudaginn var þreytan og letin allsráðandi svo ég eyddi mestöllum mínum gærdegi í að liggja upp í nýja sófanum og hálfsofa yfir sjónvarpinu - ég var samt ekkert sofandi, ég lá bara með lokuð augun ekki að hlusta á sjónvarpið! Það var fínt!!!
Annars var laugardagurinn mjög góður. Fórum í afmælið og ég ræddi við afmælisbarnið sem ekki bauð mér um þetta mál - hann sagði að fleiri hefðu kvartað "já, fyrrverandi kvartaði líka, hún fékk ekkert sms heldur!"
Þá veit maður undir hvaða hatt maður er settur - næst hjá fyrrverandi!!!
Frábært!
Síðan fórum við á Queen dæmið á Nasa - þessir gaurar voru alveg að gera góða hluti!
Það var samt alveg rosalega skrautlegt liðið þarna inni - hardcore Queen aðdáendur síðan Queen var og hét (sem sagt í eldri kantinum). Það var bara gaman.
Síðan eftir Queen var það bara Hressó og pakkinn.
Kvöldið endaði svo í svakalegri eggjaköku úr öllu sem til var í ísskápnum á begganum klukkan 8 um morguninn. Þá voru eftirlifandi 4! Við lifðum ekki lengi eftir það!!!
So to sum up - gott kvöld!

Ég held samt að þessum góðu kvöldum fari fækkandi hér með. Það er farið að styttast skuggalega mikið í prófin! Það verður bara tekið á því milli jóla og nýárs - og að sjálfsögðu á gamlárskvöld!!!

En allavega, þar sem ég gerði bókstaflega ekki rassgat í gær verð ég að taka mig saman í andlitinu og fara að gera eitthvað!
Later.

Stelpan