Reynslusaga fórnarlambs!
Þetta er kannski dáldið dramatískur titill - en þó!
Við fórnarlömb brunans eigum nú bara dáldið bágt, verður að segjast!!!
Þeir sem búa í útlöndum eða eru ekkert búin að vera að fylgjast með gangi mála í dag kíki á mbl.is - það er semsagt meidjör bruni í gangi niðrí Sundahöfn.
Hjá mér byrjaði þetta allt saman á því að ég fór á sundæfingu kl. 9 í gær (og var by the way EIN á æfing - við Vadim tvö bara í góðum fíling). Þegar æfingin var svo búin kl. 10 fór ég beint heim til Nínu systur því þar var eitthvað ógurlegt mánudagspartý í gangi.
Allavega, ég er nýkomin til Nínu þegar Unnur hringir, þá var hún ein heima (mamma og pabbi á frímó) og leist ekkert á það að vera ein heima - það væri reykur og svona. Ég, ógeðslega caring systir, sagði henni bara að slappa af, fara inn í rúm og lesa eina bók, mamma og pabbi væru alveg að koma. Hún hélt áfram eitthvað að hafa áhyggjur og ég alveg sallaróleg - Unnur mín, það er enginn alvarlegur reykur, farðu bara inn í rúm að lesa!!! Ógeðslega góð systir!!!
Allavega, svo hringir mamma í mig þegar þau koma heim og segir mér að það sé kviknað í þarna niðurfrá og löggan sé að keyra um hverfið og segja öllum að loka vel gluggum og svoleiðis.
Síðan dálitlu seinna (um hálf 12) hringir hún aftur og þá er löggan búin að koma og reka þau út!!!
Svo við náttúrulega smöluðum liðinu heim til Nínu og það var ægilegt plott um það hver ætti að sofa hvar og svona.
Ég gerði samt alveg ráð fyrir því að þetta yrði búið um morguninn - þetta ástand gæti nú ekki verið lengi!
Nú, ég gisti hjá Nínu Kr. um nóttina (og Nína!!! Þú ert EKKI hætt að gnísta tönnum!!!). Svo vaknaði ég um 7, læddist út og ætlaði heim að taka mig til fyrir skólann kl. 8 - hringi í mömmu og þá voru þau að fara í sund, þau rétt fengu að fara inn í nokkrar mínútur og svo voru þau rekin aftur út!!
Great! Svo ég fer heim til Nínu systur því þau voru vöknuð þar og þar hangi ég og horfi og hlusta á fréttir og ekkert kemur í ljós.
Svo á endanum ákvað ég að ég yrði bara að fara heim og ná í töskuna mína - ég er að fara í tíma og ég þarf að skila ritgerðinni minni (sem var útprentuð í fínni möppu tilbúin að fara til kennarans).
Ég semsagt keyri inn í hverfið og það voru löggur everywhere, búnar að loka götum alls staðar!
Allavega, ógeðslegur mökkur yfir hverfinu, ég þurfti að drepa í loftræstingunni til að kafna ekki.
Svo lagði ég í götunni við hliðina á og labba upp að björgunarsveitarbílnum sem er lagt fyrir Brekkulækinn og ég er varla komin að honum þegar einn gaurinn stekkur út úr bílnum til að stoppa mig!
Ég spurði hann hvort ég mætti aðeins fara inn. Nei.
En mig vantar töskuna mína. Nei.
En ég verð að ná í skólatöskuna mína!! Nei. Segðu bara kennaranum að þú hafir ekki mátt sækja hana!!!
Frábært! Síðan eftir smá samningaviðræður samþykkti hann að leyfa mér að fara inn í húsið - gegn því að ég yrði ýkt fljót, hann myndi koma með mér og hann hafði talstöðina meðferðis - auk þess sem hann var með gasgrímu dauðans!!! Mér fannst þetta nú bara ekkert fyndið!
Svo ég fór með honun inn og var grínlaust svona 42 sekúndur að ná í draslið mitt (gleymdi samt sumu því ég var að flýta mér svo mikið) og allan tímann þá stóð hann, með grímuna og talstöðina í viðbragðsstöðu - ertu ekki að verða búin?!?!?!
Síðan var hlaupið aftur út og inn í bíl og brunað í burtu!
Ég verð nú bara að segja að mér er ekkert alveg sama!!!
Ég fór aðeins niðrí vinnu til mömmu, heilsa upp á hana og svona og svo kom ég upp í skóla. Skilaði ritgerðinni (jey!) og sit nú - heimiliislaus - og er að drepa tímann í tölvunni!!!
Og skv. mbl.is þá erum við ekkert að fara heim á næstunni enda mengunin hvergi nærri farin - ojj hvað þetta var ógeðslegt!!!
Svo loksins þegar við fáum að fara heim (god only knows when) þá þarf að þrífa allt!! ALLT!!!
Reykjar-ógeðs-mengunar-fnykurinn verður búinn að festa sig í ALLT!!!
Æ mig auma!!!
Allavega, keep you posted.
Stelpan

<< Home