Saga af auga
Ég vaknaði klukkan 7 í morgun! Aftur ekki af fúsum og frjálsum vilja, aftur út af auganu!
Í þetta skipti ákvað ég að það væri komið nóg af augnveseni og hringdi í heimilislækninn minn og krafðist þess að komast að sem fyrst!
Ég komst að!
Læknirinn skoðaði mig og ákvað svo að senda mig til augnlæknis til að skoða þetta betur, svo hann hringdi í augnlækni og tróð mér að.
Augnlæknirinn skoðaði aumingja augað og komst ekki að neinni endanlegri niðurstöðu, en grunar samt að þetta hafi eitthvað með linsurnar að gera svo ég fékk dropa og á að koma aftur á morgun.
-to be continued-
Þegar skoðuninni var lokið fór í apótekið að kaupa dropana.
Það virðast engin takmörk fyrir því hversu dónalegt fólk getur verið og hversu lágt það getur lagst til þess að komast á undan!!!
Þar sem ég stóð róleg -ein- í röðinni í apótekinu kemur kona að afgreiðslukassanum með einhverskonar fjölvítamín og spyr afgreiðslukonuna hversu oft maður ætti að taka það á dag.
Ég hugsaði með mér að það væri nú hálf undarleg spurning þar sem það stendur utan á pakkningunni. Afgreiðslukonan tók dollunna af konunni og las fyrir hana hversu oft ætti að taka vítamínið. "Nú, ok. Heyrðu svo ætla ég að fá magnýl og ..."
Ég átti ekki til orð! Fólk er farið að gera bókstaflega hvað sem er til að koma sér áfram - og ég hef sérstaklega tekið eftir þessu í apótekum og hjá eldra fólki! Eldra fólk getur verið alveg ótrúlega dónalegt - ég stundum trúi ekki eigin augum og eyrum!!!
Vitiði hverjir aðrir eru dónar?!
Alkar!!!
Af hverju segi ég þetta?!
Jú, vegna þess að - eins og ég hef komið inn á hér áður - þá var ég að vinna á þingi INSÍ um helgina. Þingið var haldið niðrí Hinu Húsi í sal þar sem AA fundir fara fram reglulega.
Á föstudeginum var fundur niðurfrá svo við gengum geðveikt vel frá öllu - tókum til í salnum, vöskuðum allt upp og gerðum allt klárt svo AA menn gætu haldið fundinn sinn.
Þegar við komum á laugardaginn þá voru þeir búnir að drekka allt kaffið okkar!!!
Hitt Húsið er með sitt kaffi og geymir það á sínum stað. Við vorum með allt annað kaffi og geymdum það á allt öðrum stað og það fór ekkert framhjá neinum að það var eitthvað í gangi í salnum þessa helgi - fáninn hékk uppi, búið að raða upp borðum, ræðupúlt og dótarí auk þess sem allur matur og kaffi var geymt á sínum stað.
Ekki nóg með það að við vorum með annað kaffi heldur var líka búið að kaupa sérstakt kókoskaffi sem átti að vera með fínu fínu afmæliskökunni á laugardeginum - rándýrt kaffi. Það var í lokuðum poka hjá okkar dóti en nei, alkarnir tóku þá ákvörðun að opna pokann sem þeir áttu greinilega ekki og drekka nánast allt kaffið!!!
Svo til að toppa allt þá vöskuðu þeir ekki upp eftir sig!
Ég hreinlega átti ekki til eitt einasta aukatekið orð!
Enda var það líka þannig um helgina að ef eitthvað klikkaði - þá var helvítis ölkunum kennt um!
Við vorum svo að spá í að skilja eftir okkur vodkasull og opna vodkaflösku á einu borðinu - það hefði kennt þeim að abbast ekki upp á okkur!!!
Við gerðum það samt ekki - við erum ekki dónar!!
Jæja, nóg af dónum.
Æsispennandi framhaldssagan af auganu heldur áfram á morgun!
Þangað til - verið þið sæl!
Stelpan

<< Home