Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, desember 08, 2004

Arrrrg

Ég er ekki einu sinni byrjuð í prófum og ég er komin með aaalveg nóg af próflestri - það veit ekki á gott!
Það er samt mesta furða hvað gengur vel. T.d í dag þá byrjaði ég ágætlega fyrir hádegi en síðan upp úr 1 datt ég í ruglið og las nánast ekki neitt fram að kvöldmat!
Það var ekki inní áætluninni!
Hins vegar las ég aðeins eftir mat og var núna að kíkja á afraksturinn og það er alveg mesta furða hvað ég er búin að fara yfir mikið efni - það kom mér bara eiginlega á óvart!
Stelpan svo dugleg!!!

Eitt af því sem ég gerði í dag var að lesa Séð og heyrt.
Leiðrétting - ég las ekki Séð og heyrt heldur fletti í gegnum það - mjööög hratt!
Eins og það er nú aldrei neitt merkilegt í Séð og heyrt þá held ég að þetta tölublað hafi slegið öll met í fréttaleysi!
Allavega, með Séð og heyrt þessa vikuna fylgdi aukablað um Herra Ísland 2004. Það er svosem ekkert að því, maður getur alveg flett einn hring í gegnum það en herre min gud!!!
Ég ætla að vitna í góðan mann og segja - ég fékk alveg verk!!!
Þetta byrjar á hallæris-glötunar-viðtali við núverandi Herra Ísland, Garðar Gunnlaugsson. Satt best að segja skil ég ekki af hverju hann vann keppnina í fyrra - ég held það sé bara vegna þess að hann var meira "high profile" en hinir!
Eftir viðtalið koma svo skelfingar myndir af gaurunum sem eru að keppa í ár!
Ég segi skelfingar vegna þess að uppstillingarnar á þeim eru alveg skelfilegar! Og á sumum myndanna eru einhverja píur með þeim - það er bara hallæri!
Svo þar að auki eiga þessir strákar ekkert erindi í Herra Ísland! Með fullri virðingu, ég þekki ábyggilega svona 15 stráka sem ættu miklu miklu meira erindi þarna inn og samt eru þeir bara ósköp venjulegir sætir strákar - engin ofurmódel!!!
Eftir að hafa skoðað þessar myndir svoldið hef ég komist að því að einn þeirra er sætur og á heima í þessari keppni - ég held að hinir ættu bara að vera heima hjá sér!
Já ég held það sé óhætt að segja að eftir þessar myndaskoðanir sé ég með verk!!
Það verður samt spennandi að sjá hver verður Herra Orublu! Skyldi Palli koma og krýna arftaka sinn?!?!?! Hahahaha

Anyways, ER kallar.

Stelpan