Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, desember 22, 2004

Á dauða mínum átti ég von...

... en sú staðreynd að ég skuli ekki byrja í skólanum fyrr en 10. janúar var eins og köld gusa í smettið!
Aldrei hef ég vitað annað eins!
Yfirleitt erum við að byrja strax upp úr nýja árinu, helst að mæta bara beint af áramótadjamminu í tíma!
Þetta voru svo sannarlega ánægjulegar fréttir!

Fleiri ánægjulegar fréttir - próflokadjammið heppnaðist svona svakalega lukkulega! Stútfullt hús af skemmtanaglöðu liði - mismikið í því!
Ég passaði mig alveg sérstaklega á því að vera ekki fullasta manneskjan á svæðinu og mér fórst það bara mjög vel úr hendi!

Svo var mér falið að vera með myndavélina og taka myndir - sem ég og gerði!
Ég byrjaði á því að taka bara hringinn með myndavélina og Siggi fór með mér. Síðan fannst okkur það ótrúlega góð hugmynd að á öllum myndunum þá er Siggi að benda á þann sem verið er að taka mynd af svo að á nánast öllum myndunum sem ég tók var hendi að benda!
Ógeðslega fyndið!
Við hlógum okkur alveg máttlaus - okkur fannst þetta brjálaður húmor auk þess sem þegar fólk færi að skoða myndirnar þá væru allir að spá í því hvaða hendi þetta væri á öllum myndunum!
Húmor dauðans!
Allavega... dáldið had to be there!

Svo í dag er það bara jólatiltekt, skreytingar, innpakkanir og annað í þeim dúrnum!!!
Jibbí kóla!

Stelpan