Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, desember 19, 2004

Gat skeð!

Heyrðu, mín að lesa fyrir atferlisfræðiprófið á fullu og fer að leita að einhverri grein sem kennarinn lét okkur hafa í vetur.
Finn atferlisfræðimöppuna (það er allt skipulagt út í ystu æsar) og fer að gramsa í henni og hvað finn ég - jú, fyrirlesturinn um fjölstofna mótefni fyrir prófið sem ég fór í á föstudaginn!!!
Frábært!
Það hlaut eitthvað að vera! Mig svona minnti óljóst að þessi fyrirlestur ætti að vera til en samt ekki nóg til að ég færi að snúa öllu við í leit að honum! Og ástæða þess að hann var ekki á sínum stað í skipulagin er sú að þetta er eini fyrirlesturinn sem kennarinn prentaði út og lét okkur hafa - venjulega er ég bara með þetta í tölvunni og prenta það sjálf út!!
Það er ekki nema von að ég hafi ekki alveg skilið mótefna-ævintýrið allt saman!
Ég samt renndi aðeins yfir fyrirlesturinn og komst að því að það var ekki margt í honum sem ég klikkaði á í prófinu - en þetta eru náttúrulega mistök sem eiga ekki að gerast!!!

Jæja, shit happens!

Stelpan