Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, desember 24, 2004

Gleðileg jól!

Já nú er kominn aðfangadagur. Ég er búin að fara í árlegan rúnt í kirkjugarðinn, búin að keyra út pakkana, búin að fara í sturtu og taka mig til svo nú er maður bara að slæpast þangað til jólin ganga í garð!
Jibbí jibbí!

Svo fyrir þá sem eru forvitnir um gang mála í prófunum mínum þá get ég glöð sagt frá því að ég er búin að fá út úr næringarfræðinni - fékk 8!
Það er bara nokkuð gott. Samt greinilegt að krossarnir voru eitthvað að plata mig!
En við kvörtum ekki yfir áttu!!!

En börnin góð, ég ætla að fara að taka upp jólapúslið!
Ég vona að allir eigi eftir að éta á sig gat af ógalega góðum jólamat og að allir fái ýkt fína pakka!
Gleðileg jól!

Stelpan