Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, desember 13, 2004

Hálfleikur

Jæja, næringarfræðin búin!
Þá er ég hálfnuð í prófum! Ekki leiðinlegt það! Sérstaklega sé tekið mið af því að ég var að byrja!

Gerði mér því dagamun og fór í Kringluna eftir prófið.
Keypti mér jólaskó (svo ég fari nú örugglega ekki í jólaköttinn) og 2 jólagjafir sem ég, tja, er bara mjög ánægð með! Ætla rétt að vona að viðkomandi aðilar verði kampakátir með fenginn!

Svo eru það bara Tilraunadýr og vísindarannsóknir á föstudaginn.
Ég ætla alveg að vera ekki að stressa mig fyrir það próf! Sé tekið mið af gömlum prófum ætti þetta að vera pís of keik! Breytir ekki því að maður þarf samt að lesa dáldið fyrir það.

Kíkti á stofuskipanina áðan og jújú, er í VRII - í þriðja skipti af þrem!
Þá er bara að sjá hvort síðasta prófið mitt verði ekki bara líka í VRII!
Helvítis pakk. Mér finnst samt alltaf merkilegt að kíkja á stofuskipanina því við líffræðingarnir þurfum nánast alltaf að fara í VRII (sem er svona meira verkfræði/stærðfræði/eðlisfræði hús) á meðan fög sem eru kennd í verkfræði/stærðfræði/eðlisfræði eru oft í Öskju - heimili líffræðingsins!
Ekki veit ég hvaða snillingur er að skipa í stofur á þessu heimili!

Jæja, breytir ekki því að ég hef ekkert að segja - ekkert sem almenningur vill heyra allavega, svo við látum hér við standa!

Stelpan