Ja hérna hér
Þar sem ég var ótrúlega dugleg að lesa í gær þá nenni ég engan veginn að koma mér í gírinn núna!
Þess í stað ákvað ég að kíkja á í hvaða stofu ég verð í prófinu á laugardaginn.
Jújú, gat skeð, er í fjandans VRII í prófinu!
Ég er að fara í próf í Vistfræði spendýra (gæti ekki verið meira líffræðifag) og við getum ekki einu sinni verið í húsinu sem var byggt sérstaklega fyrir okkur líffræðingana! Nei, þess í stað verða próf í "Aðferðir og hugtök" og "Norsk málfræði og málnotkun I" tekin í Öskju!
Það sýður svona nett á mér og það þarf held ég ekkert að nefna þann sem þetta er allt saman að kenna!
Annars er það merkilegt að kíkja aðeins á það sem er í boði við háskólann (er búin að vera að kíkja aðeins á stofuskipan og svona).
Sem dæmi um fög eru "Saga Afríku frá 1880" - og það eru alveg 36 manns að taka það! Síðan er það t.d. "Litúrgísk fræði III Embættisgj." - hver er ekki búinn að taka það?! Svo eru líka "Heimspekileg forspjallsvísindi", "Slembiferli" og "Hitler og Stalín, alræðisstefnur"!
Þetta er bara brot af þeim prófum sem verða næstu 5 dagana en próftímabilið er alveg til 21. des. Það verður spennandi að sjá hvað kemur fleira!
Miðað við þetta eru mín fög hálf óspennandi!
Já það er margt skrýtið í kýrhausnum!
Ásamt því að skoða stofuskipan í prófum er ég búin að kíkja vandlega á dagatalið. Það er gaman að segja frá því að það er kominn 6. desember!
Þar sem ég klára prófin 21. desember má glögglega sjá að það eru ekki nema rétt um 15 dagar þangað til ég klára! Það eru bara tvær vikur!!!
Sweet Jesus - það verður ekki leiðinlegt!
Annars er ég svo pollróleg út af þessum prófum - er alls ekkert að stressa mig neitt yfir þeim - bara eitthvað í rólega pakkanum og slæpast í tölvunni og horfa á sjónvarpið og svona. Ég verð samt að passa mig á að verða ekki of kærulaus - þetta eru fögin sem ég á að vera að fá hátt í svo það er eins gott að maður standi sig!
Að því sögðu ætla ég að fara að klára að rúlla yfir næringarfræðina en að því loknu get ég hellt mér í vistfræði spendýranna! Gaman gaman!
Stelpan

<< Home