Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, desember 03, 2004

Jól

Það eru að koma jól!
Eftir nákvæmlega 3 vikur mun ég sitja við matarborðið að úða í mig jólamatnum!
Ég er svona aðeins að gera mér grein fyrir þessu.
Það sem mér þykir merkilegast við þetta allt saman er það að þegar blessuð jólin loksins koma verð ég búin í prófum!!! Það er eitthvað sem ég sé ekki fyrir mér í dag!
En hversu gott verður að komast í jólafrí - jafnvel þótt það sé bara stutt?!
Helv... raunvísindadeild Háskóla Íslands er alltaf búin laang síðast í prófum og byrjuð laang fyrst aftur!
Alveg eflaust doktor Magga að kenna!

Allir þeir sem eru þegar búnir í prófum og komnir í jólafrí - oj ykkur!

Stelpan