Jólaletin
Síðustu dagar hafa verið einstaklega letilegir hjá mér - hvort sem það snýr að bloggi eða einhverju öðru!
Samt hef ég ekki bara setið á rassinum allan daginn, nei nei, ég er búin að gera ýmislegt mikilvægt eins og að fara í ljós, kaupa mér áramótabol og redda mér geðveikri áramótahárkollu!
Þetta er alveg 4 daga vinna!
Æ það er bara ágætt svona rétt á milli anna - áður en maður veit af er vorönnin byrjuð og þá verður nóg að gera aftur.
Hins vegar vil ég lýsa yfir óánægju með kennara líffræðiskorar - eins og alltaf!
Aldrei virðast þeir geta drullast til að fara yfir prófin og skila einkunnum!
Það lítur út fyrir að ég þurfi að bíða þangað til í næstu viku með að fá fleiri einkunnir - þetta er nú meira pakkið!
Annars verð ég bara að segja að þrátt fyrir mikinn aflögu tíma og svosem nóg söguefni þá bara nenni ég bara ekki að skrifa - ekki að svo stöddu allavega!
Svo ég óska ykkur bara gleðilegs nýs árs - það kemur meira á nýja árinu!
Stelpan

<< Home