Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, desember 18, 2004

Jólin nálgast eins og óð fluga!

Já nú er bara eitt próf eftir!
Það er vægt til orða tekið að segja að ég hlakki til að vera búin!

Fór í tilraunadýraprófið í gær, það gekk svosem ágætlega, enda varla við öðru að búast í þessu fagi.
Það var reyndar eitt sem ég skildi ekki alveg nógu vel og það var mótefna-ævintýrið allt saman. Glósurnar voru svoldið loðnar og ekki farið vel í það í bókinni. Allir sem ég talaði við voru á sama máli.
Eftir miklar spekúleringar fyrir prófið komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta próf yrði pís of keik - það eina sem mátti ekki koma af öllu námsefninu var stór spurning um mótefnin.
Og hvað haldiðið?!
Það kom 20% spurning um mótefni!
Great!
Allavega, maður bullaði sig bara út úr því og vonar það besta!

Svo er það síðasta prófið, atferlisfræðin, á þriðjudaginn!!!!
Ég er hrædd um að lestur fyrir það verði alveg í lágmarki þar sem ég er bara allt of upptekin við að kaupa jólagjafir, baka piparkökur og annað sem mig langar miklu frekar að gera!
Svo á þriðjudaginn verður tekið brjálað próflokadjamm!
Brjálað fyllerí og læti!!!
Tja, veit ekki alveg með brjálaða fylleríið en það verða svo sannarlega læti!!!
Ójá!

En jæja, ætla að fara að lesa um mökunarkerfi - wish me luck!

Stelpan