Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, desember 04, 2004

Merkilegheit

Það er alveg merkilegt hvaða áhrif próflestur getur haft á mann.
Tæknilega séð ætti ég að vera að lesa fyrir próf akkúrat núna en það eru bara svo margir enn meira aðkallandi hlutir sem ég verð að sinna.

Til dæmis fannst mér ég ekki mega missa af Apprentice áðan, þrátt fyrir það að ég hafi séð þennan þátt síðasta sunnudag! Þar að auki má benda á að ég horfi almennt aldrei á Apprentice - fannst það bara ómissandi núna!
Ég var líka að horfa á fimleika síðan á Ólympíuleikunum í sumar, það var verið að endursýna þá á gömlu gufunni. Mátti alls ekki missa af þeim!

Ég er náttúrulega svoldið löt eftir gærkvöldið.
Við Nína Kristjáns kíktum aðeins út. Þetta "aðeins" teygðist samt ögn meira en planað var og ég var ekki komin heim fyrr en um 7!
Það var mjög gaman hjá okkur - að vanda!!!
Við kíktum á Kofa Tómasar frænda - ein sem vinnur með Nínu vinnur þar.
Af þessum 20 manns sem voru á staðnum þekkti ég 7! Það þótti mér svakalegt! Það hefði aldrei hvarflað að mér að fara þangað ef við hefðum ekki verið í heimsókn en það er greinilegt að mörgum öðrum sem ég þekki dettur í hug að fara þangað!
Síðan tókum við staðlaða hringinn - Hressó og Glaumbar.
Allt að gerast!

En það verður ábyggilega ekkert að gerast í kvöld - nú verður það bara vont sjónvarpsefni og snemma í háttinn. Maður hefur gott af því líka.
Svo verð ég dugleg að lesa á morgun - ég lofa!

Stelpan