Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, desember 11, 2004

One down!

Ójá, ég er búin í fyrsta prófinu mínu!
Og það sem er enn betra - það gekk bara nokkuð vel!!!
Þetta var samt bara 55% próf - skilaði ritgerð og skýrslu upp á 45% svo við skulum bara vona að ritgerðin og skýrslan hafi gengið eins vel og prófið!!!

Þá er það bara næringarfræðin á mánudaginn!
Ég held ég sé búin að vera að drepa fólk með endalausum, unwanted næringarfræði-innskotum!
En það er bara allt í lagi - þið hafið öll gott af því og lifið vonandi heilbrigðara lífi eftir á!!!

Fram að mat er planið að gera ekkert - og þurfa ekki að vera með samviskubit út af því!
Hins vegar þarf ég að fara að læra strax eftir mat og svo þarf að massa morgundaginn!
Þannig að... þar sem ég á aðeins um 2 klst eftir af samviskulausri leti ætla ég ekki að eyða meira af þeim tíma hér svo.. see you later!

Stelpan