Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, desember 02, 2004

Smartheit

Guð ég er svo smart núna! Búin að fara í klippingu og strípur og er loksins orðin sómasamleg um hausinn!!!
Er samt dáldið hrædd um að nýju fínu klippingunni verði pakkað inn í hausband á meðan próflestri stendur en eftir tæpar 3 vikur verður hausbandið tekið af og jólin boðin velkomin - vá ég get ekki beðið!!!

Annars var ég í upprifjunartíma í næringarfræði áðan.
Vaaaaááááúúúúú hvað hann var leiðinlegur! Ég var í alvörunni byrjuð að deyja!
Við höfum öll farið í svona upprifjunartíma - kennarinn segir hvernig prófið er uppbyggt og svona og oftast koma nokkur "kunna þetta vel *blink*blink*" en ónei - ekki þessi upprifjunartími!!!
Kennarinn tók öll glærusjóin sín og tók hverja glæru fyrir sig (við erum að tala um kannski 200 glærur) "Kunna þetta vel, og þetta, þetta, þetta, þetta, og þetta, þetta, skilja þetta, þetta, þetta, og þetta, þetta, já og þetta, og þetta, þetta..."
Tvöhundruð glærur!!!
Boj, þetta var laaangur tími!

En allavega, í þessum laaanga tíma hitti ég einmitt Sigga - nú vita allir hver Siggi er eftir færsluna sem ég skrifaði honum til heiðurs (eftir töluvert nöldur).
Allavega, Siggi var sáttur við færsluna og sagðist hafa kommentað og allt!
Flott mál, ég ákvað að kíkja á kommentið hans og ha ha ha!
Greyið Siggi litli - bíður í ofnæmi eftir næstu færslu um sig!
Ég ákvað bara að drífa af þessa næstu færslu svo hann losni nú við þetta ofnæmi blessaður!
Segiði svo að Siggi sé ekki gleðigjafi!

En jæja, ég er hrædd um að næringarfræðin læri sig ekki sjálf - og miðað við hvernig prófið verður þá er eins gott að fara að massa þetta!
-andvarp-

Stelpan