Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, desember 28, 2004

Stuðmenn rúla!

Haha, var nýbúin að publisha bloggið og var að pirra mig á helv... pakkinu sem þykist vera að plana eitthvað og getur svo ekki látið mann vita - þá hringir Helgi aftur:
"Hérna, það er enginn hérna nema við Rúnar, kemst þú klukkan 11?"
"Já"
"Ok, nennir þú að tékka á Nínu og einhverjum?!"
"Já"
"Flott, sjáumst klukkan 11"
Meiri aularnir! Plönuðu eitthvað tveir útí horni og gerðu bara ráð fyrir að fólk myndi skynja hvar og hvenær ætti að fara!

Allavega, við Nína brunuðum uppí Limalind og það var bíóferð klukkan11.
Ég vil ekki koma með of sterkar yfirlýsingar um þessa mynd - svo fólk fái ekki brjálaðar væntingar - en hún var frábær!
Við hlógum, geðveikt hátt by the way, nánast alla myndina út í gegn!
Og það er ekki spurning - Dúddi var lang bestur í þessari mynd!!!

Bara að láta vita!

Stelpan