Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, janúar 02, 2005

2005

Gleðilegt ár öll sömul!!!
Takk fyrir gamla árið og allt það!

En jæja, það er komið að því - sögustund!

Ég, Nína og Nína ákváðum semsagt að vera með hárkollur á gamlárs.
Það var æði!
Mín var svona rauðbrún, krulluð - geðveikt big hair!
Hún var gjeð- veik!!!
Ég þekki það ekki sjálf en reyndir menn sögðu að það væri nettur Debbie does Dallas fílingur í þessu!!!
Bara húmor!
Nínurnar voru hins vegar báðar ljóskur dauðans - við sáum bókstaflega greindarvísitöluna lækka um 20 stig!!!

Það var semsagt partý hjá Nínu Kristjáns og Inda bróður hennar á gamlárs. Það var mjög fyndið. Indi og vinir hans eru hnakkar dauðans! Það voru tveir guttar þarna sem voru svo svakalega miklir hnakkar - það var bara gustur í kringum þá allt kvöldið!
Á móti komu svo vinir hennar Nínu - við með kollurnar og svona!
Það er ekki laust við það að það hafi verið dáldið hópaskipt partý! En það var bara gaman.
Við fórum samt ekkert niðrí bæ, nenntum ekki, vorum bara í partýinu fram undir morgun!

Síðan var nýársfögnuður í gær.
Fórum á Stuðmenn á Nasa og við ákváðum að það yrði kollukvöld - aftur! Fyrst við vorum byrjaðar á þessu kolluævintýri þá skyldi það vera alvöru!!!
Við fórum 3 með kollurnar, svo kom Mæja frænka og vinur hennar - bæði með kollur! Svo voru 2 kollulausar (glataðar)!
Vá hvað það var gaman!!!
Ég leit semsagt út eins og ég hefði komið beint úr tökum á Debbie does Dallas II - fannst það bara fyndið en píurnar sem voru þarna voru ekki að fíla það að athyglin skyldi ekki beinast öll að þeim - og það er skemmst frá því að segja að maður fékk allmörg furðuleg lúkk!

Svo að sjálfsögðu hitti ég helling af fólki sem ég þekki og já, það var horft á mig eins og ég veit ekki hvað. Málið var að ég hitti 5 manneskjur sem voru með mér í grunnskóla og ég hef ekki séð í mörg ár. Svo hitti ég liðið þarna - með kolluna eitthvað og þetta var húmor sem liðið kunni ekki vel að meta!
Þær voru þarna 2 sem fannst þetta bara ekki fyndið og það var augljóst á svipnum á þeim ég var alveg að ganga fram af þeim!!!
Ég nennti samt engan veginn að hafa einhverjar áhyggjur af því - hélt bara áfram mínu striki og fór að dansa með hinum kollunum!

En Stuðmenn voru æði - við dönsuðum eins og vitleysingarnir sem við erum!
Síðan þegar ballið var búið vorum við að spá í að fara á eitthvað rölt en það var einhvernveginn ekki hægt að toppa Stuðmenn - svo við fórum bara heim!
Snilldar kvöld!

Síðan vaknaði ég áðan, kom mér á lappir og svona og fór svo niður í Laugar. Það var verið að opna nýju sundlaugina í Laugardalnum og við fórum að kíkja.
Laugin er alveg mögnuð! Ég hlakka svo til að fara að æfa í henni - og jafnvel keppa í henni á næstunni!!!
Það var kominn tími á að sundmenn landsins fengju almennilega sundlaug!
Nú er ég ekkert búin að synda í henni eða prófa neitt en hún lítur mjög vel út - greinilegt að doktor Maggi kom hvergi nálægt þessari laug!!!

Síðan tekur núna við heil vika af leti þangað til skólinn byrjar aftur!
Um að gera að gera sem allra allra minnst þessa daga því ég hef grun um að ég fái nóg að gera þegar ég byrja aftur í skólanum!

En, breytir ekki því að sögustund er lokið í bili!
Þangað til næst...

Stelpan