Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Janúarútsölur

Fór einn hring í Kringlunni og Smáralind áðan - bara rétt til að kíkja á útsölurnar.

Eins og við var að búast voru vörurnar á útsölunum þær vörur sem maður var búinn að skoða á sínum tíma og ekki kaupa þannig að ég fann ekki margt!

Hins vegar keypti ég skóna sem ég er búin að vera að horfa svoldið á upp á síðkastið.
Þeir eru beautiful!!!
Það er skemmst frá því að segja að þeir eru bleikir og með slaufu!
Ohhhh þeir eru svo æðislegir!

Síðan fann ég eina tösku í Debenhams og hún er beautiful BEAUTIFUL!!!
Hún er bleik - í stíl við skóna!! Svo er hún loðin og með nælu!!!
I loooooove it!!!

Það var hægt að fá bæði skóna og töskuna í svörtu - en af hverju hafa það svart þegar maður getur haft það bleikt?!?!?!

Stelpan