Mótið
Já ég keppti í gær.
Það gekk ekki alveg eins vel og ég hafði vonað - gekk samt ekkert illa!
Því miður má hálfpartinn kenna nýju, fínu lauginni um að það gekk ekki eins vel og annars hefði verið!!!
Málið er að í loftið í nýju, fínu lauginni er í boga þannig að þegar maður syndir baksund þá syndir maður alveg ósjálfrátt alltaf á ská - sem gerir það að verkum að maður klessir á línuna!
-Ég vil taka það fram að þetta er ekki bara í hausnum á mér - það eru allir að kvarta undan þessu-
Þar sem ég er búin að vera að æfa í lauginni og hefur nokkurnveginn tekist að útiloka þessi áhrif þá hafði ég ekki miklar áhyggjur af því per se. Svo var ég að synda bakið í gær, var komin á gott skrið, var á góðum tíma og svona en þegar það voru svona 15 m eftir þá missti ég aðeins einbeitinguna eða eitthvað og bókstaflega brotlenti á línunni!!! Þá missti ég náttúrulega niður allan rythma og það fór allt einhvernveginn í klúður!!!
Djöfull var ég brjáluð, ég var næstum því búin að lemja dómarann (bara svona af því hún var næsti maður).
Þannig að ég fór á allt í lagi tíma 50 bak, 39:07 - en hefði bókað verið vel undir 39 ef ég hefði ekki lent í ruglinu!
Síðan synti ég líka 50 skrið en þar sem ég fékk ekki nema um 20 mín pásu eftir bakið og var ennþá dáldið pirruð þá var ég svosem ekkert að brillera, fór á 33:93 - alveg ásættanlegt en ekkert gott!
Það má samt taka það fram upp á grínið að það var keppt í 50 m laug!
Þannig að mótið var bara svona lala - næsta mót verður sko tekið í rassgatið!!!
Svo má til gamans geta að fólk tók í alvöru eftir því að crewið mitt mætti ekki á svæðið til að styðja sína manneskju - kannski það hafi haft sitt að segja um úrslitin?!?!
Stelpan

<< Home